Öruggt hjá FH í Safamýri

Jón Bjarni Ólafsson skoraði sjö mörk fyrir FH.

FH nálgaðist nágranna sína í Haukum á toppi úrvalsdeildar karla í handknattleik í kvöld með öruggum sigri á Víkingi í Virkinu í Safamýri, 42:35.

FH er í öðru sæti með sautján stig, fimm stigum minna en Haukar. Víkingur er í níunda sæti með sjö stig.

Það var mikið skorað í leiknum í kvöld en FH-ingar voru alltaf skrefinu á undan og leiddu mest með fjórum mörkum og voru 19:15 yfir í hálfleik.

Víkingar skoruðu fyrsta markið í síðari hálfleik en þá svöruðu Hafnfirðingar með þremur mörkum í röð og var staðan þá 22:16. FH komst mest átta mörkum yfir í síðari hálfleik og var sigurinn aldrei í hættu. 

Landsliðsmaðurinn Jón Bjarni Ólafsson og ungstirnið Brynjar Narfi Arndal voru markahæstir FH-inga með sjö mörk hvor og Ómar Darri Sigurgeirsson og Ágúst Guðmundsson skoruðu sex.

Ísak Óli Eggertsson skoraði sjö mörk fyrir Víking og Sigurður Páll Matthíasson sex.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab