Innkalla Evu Laufeyjar þristakökur

Myllan innkallar þessa vöru, öll lotunúmer, vegna mögulegs aðskotahlutar sem reynst getur skaðlegur. Ljósmynd/Myllan

Myllan hefur ákveðið með tilliti til neytendaverndar og í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla Evu Laufeyjar Jólasmákökudeig þristakökur vegna mögulegs aðskotahlutar.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá Myllunni og ástæða innköllunar sú að málmloka, sem notuð er til þess að loka deiginu, fannst í deigrúllu í vörunni.

Bent á að neyta ekki vörunnar

Neytendum er bent á að neyta ekki Evu Laufeyjar Jólasmákökudeigs, þristakaka, heldur farga vörunni eða skila í verslanir þar sem hún var keypt eða til Myllunnar að Blikastaðavegi 2.

Vöruheiti er Eva Laufey Jólasmákökudeig, þristakökur, vörunúmer, 1986, umbúðir eru askja og allar lotur innkallaðar, strikanúmer 5690568019863

Dreifing er í höndum verslana Hagkaupa, Bónuss og Kaupfélags Skagfirðinga Sauðárkróki.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab