Fimm marka heimasigur í Garðabæ
Stjarnan vann fimm marka sigur á botnliði Selfoss, 35:30, í úrvalsdeild karla í handbolta í Garðabæ í kvöld.
Stjarnan er í áttunda sæti með átta stig en þetta var þriðji sigur liðsins á leiktíðinni. Selfoss er enn án sigurs á botni deildarinnar með eitt stig.
Stjörnumenn skoruðu fyrstu fjögur mörk leiksins og voru með frumkvæðið framan af leik. Gestirnir áttu ágætis kafla undir lok fyrri hálfleiks og jöfnuðu metin í 14:14 en Garðbæingar leiddu í hálfleik 16:15.
Leikurinn var áfram spennandi í síðari hálfleik en Garðbæingar héldu forystunni og bættu í forskot sitt undir lok leiksins og unnu að lokum fimm marka sigur.
Hornamennirnir Gauti Gunnarsson og Daníel Karl Gunnarsson voru atkvæðamestir hjá Stjörnunni. Gauti skoraði sjö mörk og Daníel Karl sex.
Markverðir Garðbæinga vörðu samtals 13 skot. Róbert Örn Karlsson varði 7 og Sigurður Dan Óskarsson 6.
Hjá gestunum var Hákon Garri Gestsson markahæstur með átta mörk og Hannes Höskuldsson skoraði fimm.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗