Dagmamma sat inni saklaus í fjögur ár
Lögmannsréttur Eiðsifjaþings í Hamar fjallaði um málið eftir endurupptöku og fundu sex af sjö dómurum Ritu sýkna af að hafa verið valda að dauða Martine haustið 2006. Ljósmynd/Wikipedia.org/Andrez1
„Ég hef aldrei séð son minn í útskriftargallanum. Og ég komst ekki með miðdóttur mína á skólaslitin í tíunda bekk. Þetta var mjög sorglegt, svo mér finnst ég hafa misst af miklu.“
Þetta segir Rita, aðeins nefnd fornafni í umfjöllun norska ríkisútvarpsins NRK, norsk dagmamma sem sat saklaus í fangelsi í fjögur ár, dæmd fyrir að myrða eins árs gamalt barn, Martine, sem hún hafði í sinni umsjá.
Með útskriftargalla á Rita við svokallað „russedress“, marglita samfestinga sem norskir framhaldsskólanemar skrýðast á vordögum.
Um þessar mundir eru 20 ár liðin síðan Martine lést af völdum alvarlegs höfuðáverka 8. september 2006, þá í umsjá Ritu. Í stuttu máli er þetta atburðarásin síðan:
Martine var skilin eftir hjá Ritu 4. september. Þar féll hún í dá og var flutt á sjúkrahús áður en hún lést fjórum dögum síðar. Dagmamman var ákærð fyrir stórfellda líkamsárás með banvænum afleiðingum.
Árið 2009 var málið fellt niður eftir þriggja ára rannsókn vegna skorts á sönnunargögnum. Rannsóknardeild óupplýstra mála hjá norsku rannsóknarlögreglunni Kripos, „Kripos Cold Case“ tók málið hins vegar upp á nýjan leik árið 2015 að ósk foreldra látnu stúlkunnar.
Ákært að nýju árið 2016
Árið eftir opnaði almenn lögregla rannsóknina að nýju að fengnu áliti Kripos. Var Rita ákærð að nýju og fóru réttarhöld fram fyrir Héraðsdómi Ringerike þar sem hún var sýknuð. Ákæruvaldið áfrýjaði þeirri niðurstöðu til Lögmannsréttar Borgarþings sem dæmdi Ritu í fjögurra ára fangelsi fyrir ofbeldi sem leiddi til dauða. Var langur meðferðartími málsins metinn til refsilækkunar. Rita áfrýjaði áfellisdómnum til Hæstaréttar sem hafnaði því að taka málið fyrir.
Árið 2023 úrskurðaði endurupptökunefnd í sakamálum að málið skyldi tekið upp að nýju. Sérfræðigögn frá læknum höfðu þá komið fram er vörðuðu tímasetningu ákverkanna sem drógu Martine til dauða.
Lögmannsréttur klofnaði í afstöðu sinni
Í ágúst á þessu ári hófst ný aðalmeðferð málsins, að þessu sinni fyrir Lögmannsrétti Eiðsifjaþings þar sem dómendur Lögmannsréttar Borgarþings töldust vanhæfir í málinu samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála í Noregi. Krafðist ákæruvaldið fjögurra ára fangelsis á meðan verjendur Ritu kröfðust sýknu.
Það var svo á mánudaginn sem Rita var sýknuð fyrir lögmannsrétti sem klofnaði í afstöðu sinni, sex dómarar kváðu upp sýknudóm á meðan sá sjöundi skilaði sératkvæði og vildi sakfella ákærðu.
Eftir því sem Ringerikes Blad greinir frá taldi meirihluti dómsins ekki hægt að útiloka að höfuðáverki Martine hefði hlotist af falli, til dæmis í leik, áður en hún var skilin eftir í umsjá Ritu. Nýju læknisfræðilegu gögnin sýndu að ekki var unnt að sanna að um beint ofbeldi hefði verið að ræða eða svokallað „shaken baby-heilkenni“.
„Ef ég á að lýsa því í einu orði þá er ég þreytt,“ segir dagmamman við norska ríkisútvarpið NRK. „Algjör ringulreið ríkir í höfðinu á mér, gleði, sorg og gremja yfir því sem ég hef gengið í gegnum,“ segir hún enn fremur.
„Ég hef alltaf haft hreina samvisku, ég veit að ég gerði nákvæmlega ekkert til að skaða Martine,“ segir hún að auki.
Þungbært að fá ekki skýr svör
Verjandi hennar, Thomas Randby, telur áfellisdóminn yfir skjólstæðingi sínum á sínum tíma dómsmorð. Sýknudómurinn hefur enn ekki öðlast gildi, hann er ekki „rettskraftig“ sem kallað er á norsku, þar sem áfrýjunarfrestur er ekki liðinn.
Réttargæslumaður foreldra Martine, Marius Mørner Staurset, segir við NRK að foreldrunum þyki það þungbært að fá ekki skýr svör við því hvað raunverulega kom fyrir dóttur þeirra. Hann segir sýknudóminn þó ekki koma á óvart miðað við þau sérfræðiálit sem fram komu í síðari lotu málsins fyrir lögmannsrétti
„Ég furða mig hins vegar á því hversu mikill ágreiningur sé meðal hæfra lækna um orsakir og tilurð áverkanna og að nú sé greinilega allt önnur sýn á málið en menn höfðu fyrir aðeins örfáum árum, árið 2019,“ segir Staurset við NRK.
Áfrýjun til Hæstaréttar ekki útilokuð
Ákæruvaldið, héraðssaksóknararnir Christer Gangsø og Ellisiv Emblem Bentdal, segja í skriflegu svari til NRK að dómstóllinn hafi lagt annað mat á sönnunargögnin en ákæruvaldið.
Segjast þau nú munu gaumgæfa dóminn og senda að því loknu tillögu sína um framhaldið til ríkissaksóknara Noregs sem ákveður hvort ákæruvaldið áfrýi málinu til Hæstaréttar.
Nú ætla þau að lesa dóminn vandlega og senda tillögu sína til ríkissaksóknara (Riksadvokaten) sem ákveður hvort málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar.
Rita vill ekki hugsa svo langt fram í tímann.
„Nú njótum við bara þess sem er gott eins og sakir standa. Ég ætla ekki að hafa áhyggjur af hlutum fram í tímann,“ segir dagmamman að lokum eftir að hafa setið saklaus í fangelsi í fjögur ár.
Verði dómur lögmannsréttar á mánudaginn endanlegur mun hún eiga þess kost að sækja norska ríkið um bætur eins og Viggo Kristiansen nýlega sem sat 20 ár saklaus í fangelsi vegna Baneheia-málsins í Kristiansand og fékk dæmdar hæstu bætur sem norska ríkið hefur verið dæmt til að greiða einstaklingi, upphæð sem jafngildir 710 milljónum íslenskra króna.
NRK-II (voru höfuðáverkarnir tveggja daga gamlir?)
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗