Kominn aftur til starfa

Vincent Kompany knattspyrnustjóri Bayern München.

Vincent Kompany knattspyrnustjóri Bayern München. AFP/Daniel Roland

Vincent Kompany, knattspyrnustjóri Bayern München í Þýskalandi, er kominn aftur til vinnu eftir eftir að hafa þurft að leggjast inn á sjúkrahús í síðasta mánuði.

Kompany, sem er fertugur, hneig niður á æfingasvæði félagsins fyrir tæpum mánuði og var fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl.

Hann greindist með ertingu í heilahimnum, sem eru himnur sem umlykja heilann og mænuna.

Á blaðamannafundi í gær þakkaði hann félaginu, heilbrigðisstarfsfólki, leikmönnum, þjálfurum og stuðningsmönnum fyrir stuðninginn. Hann sagði að rannsóknir hefðu allar komið vel út og að sér liði nú mjög vel.

Aðstoðarmaður hans, Aaron Danks, stýrði liðinu í fjarveru hans og vann Bayern fjóra leiki og gerði eitt jafntefli.

Liðið er á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar með jafnmörg stig og Borussia Dortmund. Bayern mætir Köln á föstudag þegar þýska deildin fer aftur af stað eftir landsleikjahlé.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab