Hefur afleiðingar langt út reksturinn

Sky Lagoon er á Kársnesi í Kópavogi.

Sky Lagoon er á Kársnesi í Kópavogi. Ljósmynd/Aðsend

Það er deginum ljósara að ef frumvörp ríkisstjórnarinnar um auknar álögur á ferðaþjónustufyrirtæki, sem nú eru til meðferðar á Alþingi, ná fram að ganga mun það hafa veruleg áhrif á samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar.

Þetta segir Helga María Albertsdóttir, framkvæmdastjóri Sky Lagoon. Hún telur mikilvægt að ráðherra ferðamála, Hanna Katrín Friðriksson, leggi sig fram við að hlusta á sjónarmið þeirra sem starfa innan atvinnugreinarinnar og mæti til samtals við þá.

Helgi Eysteinsson, framkvæmdastjóri Iceland Travel, tekur undir mikilvægi þess að stjórnvöld og ferðaþjónustan eigi í góðu og virku samtali. Hann segir þó ekki endilega skipta öllu máli hvort ráðherrann mæti á einstaka fundi.

Fjarvera ráðherrans á fundi Samtaka ferðaþjónustunnar og Samtaka atvinnulífsins í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll á miðvikudag vakti athygli. Hanna Katrín hafði boðað forföll vegna utanlandsferðar en þegar á hólminn var komið var hún hins vegar stödd í næsta húsi, á Alþingi, þar sem hún mælti fyrir frumvarpi sínu um náttúru- og innviðagjald.

Um er að ræða annað tveggja frumvarpa sem fela í sér auknar álögur á ferðaþjónustufyrirtæki sem er nú til meðferðar á þinginu. Hitt snýr að hækkun virðisaukaskatts á baðlón.

„Það að ráðherrann mæti ekki til samtalsins og taki ekki tillit til þess sem við höfum verið að reyna að benda á er alvarlegt. Það er deginum ljósara að ef þetta verður samþykkt óbreytt mun það hafa áhrif á samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar,“ segir Helga María.

Gagnrýnir fyrirvarann 

„Auðvitað hefði verið heppilegra að ráðherra hefði verið á fundinum,“ segir Helgi hjá Iceland Travel en bætir við að mikilvægt sé að lesa ekki um of í þessa einu fjarveru. „Okkur finnst bara mikilvægt að ferðaþjónustan og stjórnvöld eigi í góðu og virku samtali.“ 

Helgi segir að samtalið hafi verið með misjöfnum hætti í gegnum tíðina en hann sat sjálfur í starfshópi sem hafði samráð við ráðuneytið við undirbúning frumvarpsins um náttúru- og innviðagjald.

Hann segir að sjónarmiðum ferðaþjónustunnar hafi ekki að fullu verið mætt, en gagnrýni hans beinist að miklum hluta til að fyrirvörum og útfærslu breytinganna.

„Það hefur ekki verið tekið að fullu tillit til okkar sjónarmiða hvað þetta varðar. En það varðar að miklu leyti fyrirvarann á málinu og útfærsluna frekar en hugmyndafræðina,“ segir hann.

Hann segir mikilvægt að fyrirtæki fái nægan fyrirvara þegar ráðist er í breytingar sem þessar. „Það þarf að vera góður fyrirvari á ákvörðun eins og þessari því ef ekki þá bitnar það alltaf á þeim sem síst skyldi, sem eru fyrirtækin.“

Helga Margrét Albertsdóttir, framkvæmdastjóri Sky Lagoon.

Helga Margrét Albertsdóttir, framkvæmdastjóri Sky Lagoon. mbl.is/Hákon

Margföldunaráhrif út í samfélagið

Helga María segir áformin sérstaklega alvarleg í ljósi þess að ferðaþjónustufyrirtæki hafi margföldunaráhrif út í samfélagið.

„Í mínum rekstri eru til dæmis fjölmargir aðilar sem koma að starfseminni en eru ekki sjálfir í ferðaþjónustu. Þar má nefna þrifafyrirtæki, auglýsingastofur, hugbúnaðarfyrirtæki, iðnaðarmenn, bókara og birgja sem sjá okkur fyrir vörum og þjónustu. Við eigum meðal annars í viðskiptum við fimmtu kynslóð bakara sem sér okkur fyrir því sem við seljum á kaffihúsinu okkar,“ segir Helga María.

„Þannig að tíu prósenta fækkun gesta hjá mér hefur afleiðingar langt út fyrir okkar eigin rekstur. Það er þetta sem við erum að reyna að benda stjórnvöldum á. Þetta snýst ekki bara um eitt fyrirtæki.“

Ekki bara ferðamenn

Þá segir hún að hækkun virðisaukaskatts komi eðli málsins samkvæmt fram í verði til neytenda. Viðskiptavinir Sky Lagoon séu enda ekki eingöngu ferðamenn.

„Við erum að fá margt fólk til okkar sem fagnar til dæmis tyllidögum, brúðkaupsdögum, brúðkaupsafmælum, sambandsafmælum og jafnvel tólf ára afmælum.“

Helga María bendir jafnframt á að baðlón á Íslandi séu orðin að fágaðri upplifun sem bjóði flest hvert upp á úthugsaða sérstöðu sem byggi á umhverfi hvers sveitarfélags fyrir sig.

„Það hefur verið lagt gríðarlega mikið fjármagn í þessa uppbyggingu. Að baki henni eru líka mörg störf, verktakar, verkfræðingar, arkitektar og hönnuðir. Maður þarf að horfa á stóru myndina,“ segir hún og bætir við:

„Hverjir ættu að hafa hug á að fjárfesta í stórum verkefnum ef regluverkið breytist til hægri og vinstri eftir því hvað hentar hverju sinni.  Það er galið að tefla öllu þessu í tvísýnu vegna skammtímahagsmuna.“

Helga María segist vita af fjárfestingum í baðlónum víða um land sem voru á teikniborðinu en séu nú komnar á ís.

Helgi Eysteinsson, framkvæmdastjóri Iceland Travel, tekur undir mikilvægi þess að stjórnvöld og ferðaþjónustan eigi í góðu og virku samtali. Ljósmynd/Aðsend

Fyrirsjáanleiki skipti máli

Helgi tekur undir mikilvægi þess að fyrirtæki í ferðaþjónustu búi við fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi. Hann segir að skortur á fyrirvara geti haft neikvæð áhrif á fyrirtækin, hvort sem þau veita ferðamönnum þjónustu beint eða sjá um að pakka slíkri þjónustu saman og endurselja hana.

„Það þarf að vera góður fyrirvari á ákvörðun eins og þessari, því ef ekki þá bitnar það alltaf á þeim sem síst skyldi, sem eru fyrirtækin. Annars vegar þau sem veita þjónustuna og hins vegar þeir sem eru eins og við, að pakka henni saman og endurselja,“ segir hann.

Helga María segir jafnframt að takmörk séu fyrir því hvað ferðamenn bæði vilji og geti greitt fyrir upplifanir. Í mörgum ferðaþjónustufyrirtækjum megi lítið út af bregða þrátt fyrir að þau skili hagnaði í dag.

“Það þarf að horfa á rekstrarmódelið og skoða hvað gerist ef gestum fækkar. Það þarf ekki mikið til þess að reksturinn hætti að ganga upp hjá mörgum fyrirtækjum,“ segir Helga María.

Að lokum segir Helga María skammsýni felast í því að horfa fram hjá þeim sjónarmiðum sem ferðaþjónustan hefur reynt að koma á framfæri við stjórnvöld.

„Við höfum meðal annars skrifað um þetta í umsögnum og komið þessum sjónarmiðum á framfæri víða.“

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab