Katrín Tanja fór í ævintýralega brúðkaupsferð
Crossfit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir Laich og eiginmaður hennar, Brooks Laich fyrrverandi atvinnumaður í íshokkí, gengu í hjónaband sumar. Nú eru þau lögð af stað í ævintýralega brúðkaupsferð.
Eins árs gömul dóttir hjónanna fékk að fara með í ferðalagið og virðist nokkuð sátt með áfangastaðinn. Hjónin fóru til Bora Bora og birtu guðdómlegar myndir frá áfangastaðnum. Þar getur fjölskyldan baðað sig í tærum sjó og notið þess að vera í sólinni. Hjónin fara að sjálfsögðu í ræktina enda slá þau aldrei slöku við.
Bora Bora er paradís
Hitinn á Bora Bora er nálægt 30 gráðum þessa dagana og því ljúft að fara í frí þangað rétt fyrir jól. Bora Bora er lítil eldfjallaeyja í Suður-Kyrrahafi norðvestur af Tahíti. Hún er meðal annars þekkt fyrir tæran sjó og lúxushótel á staurum í sjónum með stráþökum en fjölskyldan dvelur á slíku hóteli.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/39/1693958.jpg)