Er skandall í saltheiminum?
Flestir kannast við Maldon-sjávarsaltið og eiga jafnvel pakkningu í eldhússkápnum. Fyrirtækið hefur framleitt salt frá árinu 1882 og kennir sig við enska strandbæinn Maldon í Essex. Nú er það í klípu eftir að upp komst að saltflögurnar eru ekki eingöngu unnar úr sjónum þar.
Fréttamiðillinn The Observer greindi nýverið frá því að fyrirtækið notaði einnig bergsalt úr námum í Þýskalandi við framleiðsluna. Blaðið fylgdist með starfseminni í tvo daga og sá meðal annars vörubíla afhenda stóra saltsekki frá þýska saltframleiðandanum K+S á framleiðslustað Maldon í Essex.
Umfjöllunin vakti hörð viðbrögð hjá sumum viðskiptavinum sem töldu upplýsingarnar ekki samræmast þeirri mynd sem þeir höfðu af uppruna saltsins. Maldon birti í kjölfarið yfirlýsingu á Instagram miðvikudaginn 18. nóvember.
Þar sagðist fyrirtækið skilja að fólk hefði spurningar og viðurkenndi að það hefði ekki gert nóg til að útskýra framleiðsluna. Aðferðin væri þó gamalgróin og saltið sem fólk ætti heima hjá sér það sama og það hefði alltaf verið. Með færslunni fylgdi skýringarmynd af framleiðslunni.
Samkvæmt skýringunni er bergsaltið látið leysast upp í sjó frá Essex svo úr verði sterkari saltlausn, eða pækill. Lausnin er síðan hituð í opnum pönnum þar til vatnið gufar upp og saltflögur myndast. Þeim er að lokum safnað með höndunum. Bergsaltið verður þannig hluti af saltinu sem fer í pakkningarnar.
Sjá má færsluna hér að neðan:
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/35/1693534.jpg)