Netverjar trúa ekki eigin augum vegna myndar af manni sem var handtekinn á Flórída
Mynd af manni sem var handtekinn í Flórída í Bandaríkjunum hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum vegna þess hversu líkur hann þykir Bruno Fernandes, fyrirliða Manchester United.
Maðurinn heitir Jose Luis Garcia Martelo og er 39 ára gamall. Hann var handtekinn 6. nóvember eftir að hafa sjálfur hringt á lögregluna. Við leit á honum fundust fíkniefni og var hann handtekinn grunaður um vörslu þeirra.
Getty Images
Myndin af Martelo hefur farið eins og eldur um sinu á samfélagsmiðlum og fjölmargir stuðningsmenn United hafa gert grín að líkindunum.
„Svona lítur Bruno út ef hann verður eitt ár í viðbót hjá United,“ skrifaði einn.
Annar setti treyju Manchester United á myndina með hjálp gervigreindar og skrifaði: „Bara venjulegur gleðidagur hjá leikmanni United.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗