Neyðist til að hætta 26 ára
Rikke Nygard, fyrrverandi landsliðskona Noregs í knattspyrnu, hefur neyðst til að hætta knattspyrnuiðkun vegna þrálátra hnémeiðsla.
Hún greindi frá ákvörðuninni á Instagram en hún hefur gengið í gegnum erfiða tíma undanfarin þrjú ár.
„Eftir þrjú ár, fimm aðgerðir og langa baráttu við að ná mér aftur á strik þarf ég nú að setja punktinn aftan við fótboltaferilinn.
Mér tókst að snúa aftur á völlinn árið 2025 og það verður eitthvað sem ég verð alltaf stolt af. Því miður þolir hnéð á mér ekki lengur álagið sem fylgir því að spila á hæsta stigi,“ skrifaði Nygard.
Nygard sleit krossband fyrir þremur árum. Hún lék sitt síðasta tímabil með Aalesund og kom fjórum sinnum við sögu hjá liðinu, sem hafnaði í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar.
Hún var liðsfélagi Diljá Ýr Zomers hjá Brann um skamma hríð en Diljá gekk til liðs við Brann í júlí 2025.
Hún þakkaði sérstaklega Brann fyrir stuðninginn á erfiðasta tímabili lífs síns og einnig Aalesund fyrir skilning og stuðning. Nygard sló í gegn með Arna-Bjørnar árið 2019 og lék þá sinn fyrsta A-landsleik.
Hún lék síðar með Vålerenga, Brann, Lilleström og Aalesund. Alls lék hún 57 landsleiki með yngri landsliðum Noregs og tvo A-landsleiki.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/41/1694173.jpg)