Nýtt krabbameinslyf vekur vonir
Lyfið, sem nefnist daraxonrasib, er tekið daglega í töfluformi samhliða krabbameinslyfjameðferð. mbl.is/Þorkell Þorkelsson
Nýtt lyf við briskrabbameini hefur skilað afar lofandi niðurstöðum í fyrstu klínísku rannsóknum. Sérfræðingar segja að um sé að ræða mestu framfarir í meðferð sjúkdómsins í áratugi.
Lyfið, sem nefnist daraxonrasib, er tekið daglega í töfluformi samhliða krabbameinslyfjameðferð. Í rannsókn á 61 sjúklingi með langt gengið briskrabbamein hættu æxli að stækka hjá 90% þátttakenda.
Hjá rúmlega 60% sjúklinganna minnkuðu æxlin eða hurfu og hjá einum af hverjum tólf greindust þau ekki lengur á tölvusneiðmyndum.
Þetta kemur fram í umfjöllun BBC.
Mestu framfarir í áratugi
Bresku krabbameinsrannsóknasamtökin Cancer Research UK segja niðurstöðurnar marka tímamót í meðferð briskrabbameins, sem er meðal banvænustu krabbameina.
Sam Godfrey, sérfræðingur hjá samtökunum, segir niðurstöðurnar afar spennandi og að loksins sjáist raunverulegar framfarir í baráttunni við sjúkdóminn.
Briskrabbamein er sérstaklega erfitt viðureignar og lifa flestir sjúklingar með langt genginn sjúkdóm aðeins í nokkra mánuði eftir greiningu.
Lyfið verkar með því að hindra virkni ákveðinna stökkbreytinga, svonefndra RAS-stökkbreytinga, sem knýja áfram vöxt krabbameinsæxla. Slíkar stökkbreytingar finnast í flestum briskrabbameinum.
Ekki hægt að tala um lækningu
Þótt niðurstöðurnar veki vonir leggja vísindamenn áherslu á að enn sé of snemmt að fullyrða að lyfið geti læknað sjúkdóminn.
Fylgst var með þátttakendum í rannsókninni í átján mánuði að meðaltali og hjá sumum þeirra hafði krabbameinið ekki tekið sig upp aftur á þeim tíma.
Wungki Park, læknir við Memorial Sloan Kettering-krabbameinsmiðstöðina í Bandaríkjunum, segir niðurstöðurnar benda til þess að meðferðin geti nær tvöfaldað þann tíma sem hægt er að halda sjúkdómnum í skefjum.
Frekari rannsóknir þurfi þó til að kanna langtímaáhrifin.
Vísindamenn telja jafnframt að lyfið gæti nýst gegn öðrum krabbameinum, þar á meðal lungna- og eggjastokkakrabbameini, þar sem sambærilegar stökkbreytingar koma við sögu.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗