RARIK trúði ekki sínum eigin augum þegar það sá lægsta tilboðið - Ákvað frekar að taka boði sem var 56,5 m.kr. hærra

Orkufyrirtækið RARIK braut mögulegar útboðsreglur þegar félagið hafnaði lægsta boði í útboði á verki og tók þess í stað tilboði sem var 56,5 milljónum hærra. Línuborun, sem átti lægsta tilboðið, hefur kært útboðið og hefur samningsgerð því sjálfkrafa verið stöðvuð. Kærunefnd útboðsmála telur verulegar líkur á að brotið hafi verið gegn lögum og hafnaði í dag kröfu RARIK um að aflétta stöðvuninni.

Verkið sem málið varðar er plæging strengja og uppsetning á búnaði frá svæðinu frá Fossvallalandi og upp á Skjöldólfsstaði II. Verkið var boðið út í almennu útboði og voru útboðsgögn birt í maí á þessu ári. Fimm tilboð bárust í verkið. Línuborun var með lægsta tilboðið sem nam tæpum 70 milljónum króna. Næstlægsta tilboðið hljóðaði upp á rétt rúmar 126 milljónir.

RARIK ákvað að hafna lægsta tilboðinu og ganga frekar til samninga við Vökvaþjónustu Kópaskers, sem átti næstlægsta boðið. Taldi RARIK að lægsta boðið væri óraunhæft og að Línuborun hefði ofmetið hversu hratt gengi að plægja strengina í jörð og á sama tíma vanmetið flutningskostnað. Eins var í málinu deilt um strenglagningarvél. RARIK hafði lagt bann við notkun slíkrar vélar og taldi ljóst að Línuborun ætlaði sér engu að síður að nýta slíka. Línuborun hafði nefnilega lýst kostum vélarinnar þegar RARIK leitaði svara um hvers vegna boð þeirra væri svona lágt. Taldi RARIK því ljóst að tilboðið væri reiknað á þeim forsendum að vélin yrði þar notuð, þrátt fyrir bann um slíkt.

Línuborun mótmælti þessu. Vissulega hefði fyrirtækið nefnt strenglagningavél í svörum til RARIK en út frá því væri ekki hægt að álykta að til stæði að nota slíkt tæki. Þvert á móti hafi ítarlega komið fram í svari Línuborunar að fyrirtækið væri meðvitað um að slíkur búnaður væri bannaður og hafi fyrirtækið því tiltekið hvaða búnað stæði til að nota.

Kærunefndin kallaði til verkfræðing en sá taldi skýringar Línuborunar á tilboðsverðinu trúverðugar. Um væri að ræða félag sem þekkti vel til á svæðinu, átti að mestu skuldlausan tækjakost og sætti sig við lítinn hagnað af verkinu. Eins hafi fyrirtækið áður boðið svipuð verð fyrir sambærilega verkþætti.

Þar með taldi nefndin að RARIK hefði ekki tekist að rökstyðja hvers vegna skýringar Línuborunar á lágu tilboði hafi ekki verið teknar gildar. Verulegar líkur væru á að RARIK hefði brotið útboðsreglur með því að hafna lægsta tilboði. Bann við samningsgerð stendur því áfram. Málið hefur þó ekki verið til lykta leitt því hér tók nefndin aðeins afstöðu til samningsstöðvunar. Línuborun hefur farið fram á að vali RARIK á næstalægsta tilboði verði hnekkt og að nefndin taki afstöðu til skaðabótaskyldu. Þær kröfur bíða enn endanlegs úrskurðar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab