Þriggja mánaða bann fyrir lyfjamisnotkun

Manon Fiorot.

Manon Fiorot. Ljósmynd/@ManonFiorot_MMA

Franska bardagakonan Manon Fiorot, sem er í fjórða sæti á styrkleikalista UFC í fluguvigt kvenna, hefur verið úrskurðuð í þriggja mánaða bann fyrir brot á lyfjareglum bardagasamtakanna.

UFC greindi frá þessu í gær eftir að sýni úr henni reyndist innihalda lítið magn af efninu Ostarine.

Fiorot féll á lyfjaprófi 12. september, sama dag og hún tapaði fyrir Alexu Grasso í bardaga um réttinn til að skora á ríkjandi meistara.

Samkvæmt yfirlýsingu frá lyfjaeftirliti UFC sagði Fiorot að næringarfræðingur sinn hefði útvegað henni nokkur fæðubótarefni sem hún hafði ekki áður notað.

Við rannsókn á efnunum fundust leifar af Ostarine. Annað sýni, sem tekið var 16. október áður en henni var tilkynnt um málið, reyndist hins vegar hreint.

Ostarine er bannað efni samkvæmt lyfjareglum UFC og hin 36 ára bardagakona átti upphaflega yfir höfði sér sex mánaða bann.

Samstarfsvilji hennar við rannsókn málsins varð þó til þess að bannið var stytt í þrjá mánuði og lýkur því 19. janúar á næsta ári.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab