Trump segir dómstólinn stjórnlausan
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn sé orðinn stjórnlaus. Þetta kom fram á blaðamannafundi forsetans eftir að hann sneri aftur til Bandaríkjanna eftir að hafa fundað með Xi Jinping, forseta Kína, og Vladimír Pútín, forseta Rússlands, þar sem þeir ræddu meðal annars starfsemi dómstólsins.
Á blaðamannafundinum sagði Trump að Kína hefði „samþykkt í fyrsta sinn að fordæma misbeitingu og valdníðslu Alþjóðlega sakamáladómstólsins“.
Trump kvartaði þá yfir því að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn teldi sig geta „handtekið þjóðhöfðingja“.
„Það geta þeir ekki. Þeir geta gert það að ástæðulausu – þannig að við fordæmdum það sameiginlega,“ sagði Trump.
Reiður vegna handtökuskipanar
Bandaríkjastjórn hefur heitið því að leggja dómstólinn niður en í síðasta mánuði tóku þau upp refsiaðgerðir gegn honum. Trump hefur verið reiður yfir þeirri ákvörðun dómstólsins að gefa út handtökuskipun á hendur Benjamins Netanjahús, forsætisráðherra Ísraels, vegna meintra stríðsglæpa á Gasasvæðinu.
Dómstóllinn sækir til saka einstaklinga sem sakaðir eru um hrottalegustu ódæðisverkin og er þrautavaraúrræði þegar ríki búa ekki yfir fullnægjandi réttarkerfi til að tryggja að menn sæti ábyrgð.
Bandaríkin undirrituðu Rómarsamþykktina um stofnun Alþjóðlega sakamáladómstólsins en fullgiltu aldrei sáttmálann. Ísrael, Rússland og Kína eiga heldur ekki aðild að dómstólnum.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗