Skrifar undir hjá Víkingi en tekur annað tímabil í Kópavogi
Ólafur Örn Ásgeirsson hefur skrifað undir hjá Víkingi. Markvörðurinn kemur frá HK en mun hann spila með Lengjudeildarliðinu á láni á næstu leiktíð til að fá aukna reynslu.
Tilkynning Víkings:
Ólafur Örn semur við Víking!
Knattspyrnudeild Víkings hefur samið við markmanninn Ólaf Örn Ásgeirsson, sem kemur til félagsins frá HK. Ólafur verður lánaður aftur til HK út tímabilið 2027 en kemur svo í Víkina og keppir um stöðu aðalmarkmanns liðsins.
Ólafur Örn er 23 ára gamall, fæddur árið 2003, uppalinn HKingur sem hefur leikið 58 leiki með meistaraflokki HK. Samningurinn gildir út 2030. Ólafur verður áfram í Kópavogi á láni út tímabilið 2027, þar sem hann fær reglulegan spilatíma. Að því loknu kemur hann til Víkings og keppir um stöðu aðalmarkmanns. Víkingur og HK hafa átt gott samstarf í málinu.
Bæði félög telja að þessi leið henti Ólafi best á þessum tímapunkti ferilsins.
Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála: "Ólafur er einn efnilegasti markmaður landsins og hefur mikið af þeim eiginleikum sem við leitum að. Stærðin segir sína sögu en hann er mjög sterkur á milli stangana og mjög góður í föstum leikatriðum og að sækja fyrirgjafir. Við teljum best fyrir hann að spila reglulega hjá HK eitt tímabil í viðbót. Svo kemur hann til okkar til þess að vinna sér inn stöðuna. Við viljum harða samkeppni um markmannsstöðuna og Ólafur fær alvöru tækifæri til að verða aðalmarkmaður Víkings.“
Víkingur bíður Ólaf Örn velkominn í hamingjuna!
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗