Stefan mættur til bikarmeistaranna

Framherjinn Stefan Alexander Ljubicic er kominn til bikarmeistara Breiðabliks eftir flott tímabil með nýliðum Keflavíkur.

Tilkynning Breiðabliks:

Stefan Alexander Ljubicic hefur undirritað samning við knattspyrnudeild Breiðabliks og gengur til liðs við bikarmeistarana um áramótin. Stefan er 27 ára gamall og kemur til Breiðabliks frá Keflavík, þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö tímabil. Á þeim tíma skoraði Stefan tuttugu mörk, þar af tólf talsins á nýliðnu Íslandsmóti.

“Ég er mjög ánægður með komu Stefans, hann býr yfir mörgum eiginleikum sem munu nýtast liðinu. Hann hefur verið frábær hjá Keflavík en ég held að hann eigi samt sem áður mikið inni og á von á að sjá það brjótast út í Breiðabliks treyjunni” segir Jökull Elísabetarson þjálfari mfl. karla um komu Stefans. 

Við bjóðum Stefan Alexander Ljubicic hjartanlega velkominn í Breiðablik 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab