Telur tímabært að lækka vexti í febrúar

Andri á milli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra og Björns Brynjúlfs Björnssonar framkvæmdastjóra. mbl.is/Eyþór

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs Íslands, telur að tímabært verði að huga að lækkun stýrivaxta í febrúar þegar peningastefnunefnd Seðlabankans tekur næstu vaxtaákvörðun. Hann segir ýmsa hagvísa benda til þess að vaxtalækkanir séu fram undan á næsta ári.

Þetta kom fram í samtali Morgunblaðsins við Andra Þór að loknum peningamálafundi Viðskiptaráðs á Parliament Hotel í gær. Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað á miðvikudag að halda meginvöxtum óbreyttum í 8% en næsta vaxtaákvörðun verður 3. febrúar.

Andri Þór segir það hlutverk peningastefnunefndar að meta hvort forsendur séu til vaxtalækkunar. Hann bendir þó á að aðhald í hagkerfinu sé orðið mikið og kortaneysla á mikilli niðurleið. Af umræðum á fundinum hafi hann fengið þá tilfinningu að vaxtalækkun „liggi í loftinu“.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab