Bára Mjöll selur hæð í Garðabæ
Bára Mjöll Þórðardóttir, stjórnendaráðgjafi og meðeigandi Langbrókar, hefur sett glæsilega hæð við Lynghóla í Garðabæ á sölu.
Íbúðin er fimm herbergja og vel skipulögð í húsi byggðu árið 2019. Eignin er björt og rúmgóð, með sérinngangi, aukinni lofthæð og vönduðum innréttingum. Íbúðin skartar fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og opnu, björtu alrými þar sem eldhús, stofa og borðstofa mynda fallega heild.
Vandaður frágangur einkennir eignina, meðal annars granítborðplötur, innfelld lýsing og gólfhiti. Húsið er klætt að utan með viðhaldslítilli klæðningu og áltrégluggum.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗




