Segir ríkið ætla að afla sér tekna af uppbyggingu landeigenda – „Stjórnvöld hafa ekkert lagt til þessara staða“

Drífa Kristjánsdóttir, fyrrverandi oddviti Bláskógabyggðar, segir ríkið ætla að afla sér tekna með gjaldtöku á ferðamenn í krafti uppbyggingar sem landeigendur hafa kostað. 

Þetta kemur fram í aðsendri grein Drífu á Vísir.is. Drífa segir: 

„Nú hefur atvinnumálaráðherra lagt fram frumvarp til laga um gjaldtöku á ferðamenn á Geysi, Gullfossi og Þingvöllum.

Ráðherra lagði áherslu á að þjóðin ætti þessa staði. Hún nefndi ekki að stjórnvöld hafa ekkert lagt til þessara staða hvorki í formi þjónustu né aðstöðu fyrir ferðamenn.“

Drífa rekur síðan uppbyggingu salerna og annarra innviða fyrir ferðamenn í kringum Gullfoss, Geysi og á Þingvöllum, og segir þá uppbyggingu að mestu hafa verið á herðum landeigenda. Núna ætli ríkið að afla sér tekna af þessari uppbyggingu sem ríkið hafi ekki staðið að. Drífa skrifar: 

„Nú ætla stjórnvöld að afla sér tekna af þessu metnaðarfulla uppbyggingarstarfi landeigenda við Gullfoss og Geysi. Ráðherra leggur áherslu á að þjóðin eigi þessa staði þótt þjóðin hafi lítið sem ekkert lagt til þeirra. Slík gjaldtaka er óþolandi. Glæsileg uppbygging sem greidd hefur verið af íbúum Bláskógabyggðar getur ekki verið grundvöllur ríkisins á að leggja gjöld á erlenda gesti sem staðina heimsækja. Það finnst okkur íbúum og rekstraraðilum margra fyrirtækja í Bláskógabyggð mikil mismunum og óréttlát aðferðafræði við tekjuöflun fyrir ríkissjóð.“

Greinina í heild má lesa hér. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab