Elskum að spila bikarleiki
Íslands- og bikarmeistarar Vals í handknattleik kvenna fá topplið Hauka í heimsókn í stórleik átta liða úrslitanna í bikarkeppninni en dregið var í hádeginu í dag. Anton Rúnarsson þjálfari Vals ræddi við mbl.is eftir dráttinn.
„Haukaliðið er gríðarlega sterkt og þetta verður krefjandi verkefni, það er engin spurning,“ sagði Anton.
Valur lagði Hauka að velli í úrslitaleik bikarkeppninnar í lok febrúar á þessu ári.
„Við viljum alltaf fara sem lengst í þessari keppni og elskum að taka þátt í henni. Þetta er því mjög spennandi en um leið afar krefjandi verkefni. Við eigum góðar minningar frá síðasta ári,“ sagði hann.
Tímabilið verið upp og ofan
Valur er í 3. sæti úrvalsdeildarinnar með 14 stig, þremur stigum frá toppliði Hauka. Liðið hefur unnið sjö leiki og tapað tveimur og unnið síðustu sex í röð.
„Það hefur gengið á ýmsu hjá okkur. Byrjunin var kannski svolítið erfið vegna meiðsla og við þurftum tíma til að finna taktinn. Við erum á betri stað núna og vonandi höldum við áfram að bæta okkur.“
Átta liða úrslitin eru leikin 2. og 3. febrúar á nýju ári.
„Við eigum þrjá leiki í deildinni fyrir jól og svo tekur deildarkeppnin aftur við eftir áramót. Það er því erfitt að rýna nákvæmlega í bikarleikinn núna. Við ætlum einfaldlega að halda áfram að bæta leik okkar og þróast sem lið.“ sagði Anton við mbl.is.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗