Ótrúleg játning Wayne Rooney: Hann og eiginkonan kúka hlið við hlið - Segist þó draga mörkin þarna
Wayne Rooney, goðsögn Manchester United, bauð upp á áhugaverða játningu í raunveruleikaþættinum I'm a Celebrity.
Rooney sagði öðrum keppendum að hann og eiginkona hans, Coleen, hefðu látið koma fyrir tveimur klósettum hlið við hlið á heimili sínu svo þau gætu gert þarfir sínar saman.
„Við vorum með klósett og skolskál sem við notuðum aldrei. Þannig að við settum upp tvö klósett svo ég og Coleen gætum setið hlið við hlið og kúkað,“ sagði Rooney.
Hann viðurkenndi þó að hann vildi ekki skeina sér fyrir framan eiginkonuna og léti hana því fyrst fara út. Coleen hefði hins vegar engar slíkar áhyggjur.
Ummælin vöktu mikla furðu meðal keppenda en Coleen staðfesti frásögnina síðar með því að birta myndir af klósettunum tveimur á Instagram.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗