Fagnar 33 árum með „þessum fallega manni“
„Í 33 ár hef ég verið heppnasta stelpan í salnum,“ skrifaði Pfeiffer við myndina á Instagram. Skjáskot/Instagram
Bandaríska leikkonan Michelle Pfeiffer birti á dögunum mynd af sér og eiginmanni sínum, David E. Kelley, í tilefni af 33 ára brúðkaupsafmæli þeirra.
Myndina tóku þau kvöldið áður í Nútímalistasafninu í New York þar sem leikstjórinn Steven Spielberg var heiðraður.
„Ég hef farið 33 hringi í kringum sólina með þessum fallega manni. Og í 33 ár hef ég verið heppnasta stelpan í salnum,“ skrifaði Pfeiffer við myndina á Instagram.
Ekki málglöð þegar þau hittust fyrst
Pfeiffer hefur sagt frá því að hún hafi verið búin að sverja af sér öll stefnumót af því tagi þegar besta vinkona hennar bað hana að hitta Kelley í janúar 1993. Hún lét þó til leiðast og lagði sjálf til að þau færu í keilu með vinum.
Þótt lítið færi fyrir samræðum þeirra það kvöld hringdi Kelley í hana tveimur dögum síðar og bauð henni á stefnumót.
Pfeiffer ættleiddi dóttur sína Claudiu tveimur mánuðum eftir að hún kynntist Kelley. Þau Kelley gengu í hjónaband í Santa Barbara í Kaliforníu 13. nóvember sama ár.
Kelley ættleiddi einnig Claudiu og í ágúst 1994 eignuðust hjónin soninn John Henry.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/33/1693391.jpg)