Myndlist þekur veggi í Austurstræti
Hluti listafólks sem á verk á sýningunni. Fra vinstri: Luiza Katarzyna Kierzk, Þórir Gunnarsson, Helga Matthildur Viðarsdóttir, Atli Már Indriðason, Gígja Garðarsdóttir, Hjördís Árnadóttir, Elín S.M. Ólafsdóttir, Frida Adriana Martins og Margrét M.Norðdahl stofnandi Listvinnzlunnar. Ljósmynd/Aðsend
Verk eftir fjölbreyttan hóp listafólks munu þekja veggi Listvinnzlunnar í Austurstræti 5 frá gólfi til lofts á salonsýningu sem opnuð verður á morgun klukkan 15.
Þar gefst gestum ekki aðeins kostur á að skoða og kaupa myndlist heldur einnig að hitta listafólkið sem vinnur að list sinni í Listvinnzlunni og sjá hvar verkin verða til.
Á sýningunni mætast ólíkir myndheimar en verkin verða hengd þétt saman í anda hefðbundinna salonsýninga. Slíkar sýningar eiga sér langa sögu í myndlistarheiminum og einkennast m.a. af því að veggir eru þaktir verkum ólíkra listamanna frá gólfi og upp í loft.
Listvinnzlan hefur vakið athygli fyrir starfsemi sína og framlag til aukins aðgengis og inngildingar í menningarlífinu. Margrét M. Norðdahl stofnaði Listvinnzluna árið 2022 en Listvinnzlan hlaut t.d. Múrbrjót Þroskahjálpar árið 2023 og var tilnefnd til hvatningarverðlauna ÖBÍ árið 2025. Þá var Listvinnzlan valin listhópur Listar án landamæra árið 2026.
Ísak Óli Sævarsson er þekktur fyrir verk sín en hann á myndir á sýningu Listvinnzlunnar. Styrmir Kári
Listafólk sem á verk á sýningunni:
Andrea Gavern, Atli Már Indriðason, Benedikta Rostan, Birkir Sigurðsson, Elín S.M. Ólafsdóttir (ESMÓ), Elín Fanney Ólafsdóttir, Esmeralda Lísa Sveinbjörnsdóttir, Frida Adriana Martins, Gígja Garðarsdóttir, Guðmundur Stefán Guðmundsson, Gunnar Már Pálsson, Harpa Rut, Helga Matthildur Viðarsdóttir, Ingimar Azzad Torossian, Ísak Óli Sævarsson, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Kári Hrafn Jóhannesson, Kolbeinn Jón Magnússon, Kristján B. Rostan, Lilja Dögg Birgisdóttir, Óskar Theódórsson, Rut Ottósdóttir, Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Sunnefa Gerhardsdóttir, Úlfhildur G. Einarsdóttir, Veronica M. Jarosz, Þórir Gunnarsson (Listapúkinn) og Þorvaldur Arnar Guðmundsson.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


