Lítil döðlukaka með heitri karamellusósu
Litlar döðlukökur með heitri karamellusósu og vanilluís að hætti Lindu Benediktsdóttur. Ljósmynd/Aðsend
Volg döðlukaka, heit karamellusósa og kaldur vanilluís eru samsetning sem á vel við í lok hátíðarmáltíðar. Linda Benediktsdóttir bakar kökurnar í litlum formum svo hver gestur fái sína eigin köku á diskinn.
Hluta karamellusósunnar er hellt yfir kökurnar á meðan þær eru enn volgar og þær látnar draga hana í sig áður en þeim er hvolft á diska. Afgangurinn af sósunni er borinn fram með, ásamt vanilluís eða þeyttum rjóma. Uppskriftina er að finna á uppskriftavef Lindu Ben.
Klístruð döðlukaka með heitri karamellusósu og vanilluís
Kökurnar eru látnar draga í sig hluta karamellusósunnar áður en þeim er hvolft á diska og þær bornar fram volgar. Ljósmynd/Aðsend
Uppskriftin gefur sex litlar kökur.
Döðlukaka
- 200 g steinlausar döðlur
- 250 ml sjóðandi vatn
- 100 g mjúkt smjör
- 150 g púðursykur
- 2 egg
- 175 g hveiti
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. vanilludropar
- ½ tsk. kanill
- ¼ tsk. salt
Karamellusósa
- 100 g smjör
- 150 g púðursykur
- 200 ml rjómi
- 1 tsk. vanilludropar
- Örlítið salt
Meðlæti
-
Vanilluís eða þeyttur rjómi
Aðferð
- Hitið ofninn í 175 °C með undir- og yfirhita. Smyrjið sex lítil form, um 9 cm í þvermál og 5 cm á hæð, eða sambærileg form.
- Setjið döðlurnar í hitaþolna skál. Hellið sjóðandi vatninu yfir og látið standa í 10–15 mínútur. Maukið döðlurnar ásamt vatninu með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
- Þeytið smjör og púðursykur saman þar til blandan er létt og ljós. Bætið eggjunum út í, einu í senn, og þeytið vel á milli. Blandið vanilludropunum saman við.
- Blandið hveiti, lyftidufti, kanil og salti saman í annarri skál.
- Bætið þurrefnunum og döðlumaukinu við smjörblönduna og hrærið varlega saman.
- Skiptið deiginu á milli formanna og bakið í um 20 mínútur eða þar til kökurnar eru rétt bakaðar í gegn. Gætið þess að ofbaka þær ekki; þær eiga að vera rakar og mjúkar.
- Útbúið karamellusósuna á meðan kökurnar bakast. Setjið öll hráefnin í lítinn pott. Hitið við væga suðu og látið malla í 3–5 mínútur þar til sósan hefur þykknað örlítið.
- Takið kökurnar úr ofninum og stingið nokkur lítil göt í þær með prjóni. Hellið um þriðjungi sósunnar yfir volgar kökurnar og látið þær draga hana í sig.
- Hvolfið kökunum á diska og fjarlægið formin. Berið fram volgar með afganginum af karamellusósunni og kúlu af vanilluís eða þeyttum rjóma.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/35/1693568.jpg)
