Lítil döðlukaka með heitri karamellusósu

Litlar döðlukökur með heitri karamellusósu og vanilluís að hætti Lindu Benediktsdóttur. Ljósmynd/Aðsend

Volg döðlukaka, heit karamellusósa og kaldur vanilluís eru samsetning sem á vel við í lok hátíðarmáltíðar. Linda Benediktsdóttir bakar kökurnar í litlum formum svo hver gestur fái sína eigin köku á diskinn.

Hluta karamellusósunnar er hellt yfir kökurnar á meðan þær eru enn volgar og þær látnar draga hana í sig áður en þeim er hvolft á diska. Afgangurinn af sósunni er borinn fram með, ásamt vanilluís eða þeyttum rjóma. Uppskriftina er að finna á uppskriftavef Lindu Ben.

Klístruð döðlukaka með heitri karamellusósu og vanilluís

Kökurnar eru látnar draga í sig hluta karamellusósunnar áður en þeim er hvolft á diska og þær bornar fram volgar. Ljósmynd/Aðsend

Uppskriftin gefur sex litlar kökur.

Döðlukaka

  • 200 g steinlausar döðlur
  • 250 ml sjóðandi vatn
  • 100 g mjúkt smjör
  • 150 g púðursykur
  • 2 egg
  • 175 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. vanilludropar
  • ½ tsk. kanill
  • ¼ tsk. salt

Karamellusósa

  • 100 g smjör
  • 150 g púðursykur
  • 200 ml rjómi
  • 1 tsk. vanilludropar
  • Örlítið salt

Meðlæti

  • Vanilluís eða þeyttur rjómi

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 175 °C með undir- og yfirhita. Smyrjið sex lítil form, um 9 cm í þvermál og 5 cm á hæð, eða sambærileg form.
  2. Setjið döðlurnar í hitaþolna skál. Hellið sjóðandi vatninu yfir og látið standa í 10–15 mínútur. Maukið döðlurnar ásamt vatninu með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
  3. Þeytið smjör og púðursykur saman þar til blandan er létt og ljós. Bætið eggjunum út í, einu í senn, og þeytið vel á milli. Blandið vanilludropunum saman við.
  4. Blandið hveiti, lyftidufti, kanil og salti saman í annarri skál.
  5. Bætið þurrefnunum og döðlumaukinu við smjörblönduna og hrærið varlega saman.
  6. Skiptið deiginu á milli formanna og bakið í um 20 mínútur eða þar til kökurnar eru rétt bakaðar í gegn. Gætið þess að ofbaka þær ekki; þær eiga að vera rakar og mjúkar.
  7. Útbúið karamellusósuna á meðan kökurnar bakast. Setjið öll hráefnin í lítinn pott. Hitið við væga suðu og látið malla í 3–5 mínútur þar til sósan hefur þykknað örlítið.
  8. Takið kökurnar úr ofninum og stingið nokkur lítil göt í þær með prjóni. Hellið um þriðjungi sósunnar yfir volgar kökurnar og látið þær draga hana í sig.
  9. Hvolfið kökunum á diska og fjarlægið formin. Berið fram volgar með afganginum af karamellusósunni og kúlu af vanilluís eða þeyttum rjóma.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab