Einn af fyrstu heimsmeisturum Brasilíu fallinn frá

Dino Sani.

Dino Sani. Ljósmynd/@CBF_Futebol

Brasilíski miðjumaðurinn Dino Sani, sem varð heimsmeistari í knattspyrnu með Brasilíu á HM í Svíþjóð árið 1958, er látinn 94 ára að aldri.

Brasilíska knattspyrnusambandið staðfesti andlátið á sunnudag. Sani lék 24 landsleiki og var þekktur fyrir nákvæmar sendingar og öfluga varnarvinnu.

Sani átti farsælan félagsferil í Suður-Ameríku og Evrópu. Hann lék meðal annars með Palmeiras, São Paulo og Boca Juniors áður en hann gekk til liðs við AC Milan.

Þar varð hann Ítalíumeistari tímabilið 1961-62 og Evrópumeistari árið 1963. Hann lauk leikmannaferlinum hjá Corinthians árið 1968.

Eftir að skórnir voru komnir á hilluna tók Sani við þjálfun og stýrði meðal annars Internacional á árunum 1971 til 1973. Hann þjálfaði einnig Peñarol til tveggja úrúgvæskra meistaratitla, árin 1978 og 1979, auk fjölda annarra liða.

Samir Xaud, forseti brasilíska knattspyrnusambandsins, sagði nafn hans ávallt verða meðal þeirra bestu í sögu brasilíska landsliðsins.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab