Tvær þyrlur til taks aðeins 65% tímans
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, telur Akureyri besta kostinn fyrir bækistöð fjórðu björgunarþyrlu Gæslunnar. Leiga þyrlunnar og mönnun hennar myndu kosta 1,1 til 1,3 milljarða króna á ári. Við bættist um 600 milljóna króna einskiptiskostnaður vegna flugskýlis á Akureyri.
Georg segir í Spursmálum að þyrla á Akureyri myndi stytta viðbragðstíma á Norðausturlandi og bæta þjónustu á miðhálendinu og úti á sjó. Gæslan miði við að geta komið fólki sem þarf á aðstoð að halda undir læknishendur innan 90 mínútna. Flugtíminn frá Reykjavík geri stofnuninni erfitt fyrir að ná því markmiði á Norðausturlandi.
„Það má segja að með útgerð á þyrlum frá Reykjavík þá sé norðausturhornið meira og minna afskipt,“ segir Georg.
Þyrlufloti Landhelgisgæslunnar telur nú þrjár vélar. Fjórða vélin er nauðsynleg til þess að auka viðbragðsgetuna, ekki síst langt úti á hafi. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tvær vélar þurfa að vera tiltækar
Landhelgisgæslan hefur þrjár björgunarþyrlur og sex áhafnir. Með fjórðu vélinni þyrfti að bæta við sjöundu áhöfninni. Georg segir Gæsluna reikna með að þá gætu tvær þyrlur verið tilbúnar til útkalls um 90% tímans. Nú sé hlutfallið um 65%.
Þegar sinna þarf útkalli lengra en 20 sjómílur frá strönd þarf Gæslan að hafa aðra þyrlu tiltæka. Hún er til taks til að sækja áhöfn fyrri vélarinnar ef sú fer í hafið. Ein vél getur því verið tilbúin til útkalls þótt Gæslan geti ekki sent hana svo langt út á sjó. Georg nefnir í því sambandi viðbúnað vegna íslenskra og erlendra sjómanna og farþega skemmtiferðaskipa.
Útköll eru að sögn Georgs orðin nánast dagleg. Samhliða auknum tíma sem fer í leit, björgun og sjúkraflutninga gefst áhöfnunum minni tími til æfinga.
Innviðirnir ráða valinu
Georg segir Grímsstaði á Fjöllum heppilegasta staðinn út frá landfræðilegri legu. Við val á bækistöð þurfi hins vegar líka að horfa til flugvallar, verkstæðis og annarrar þjónustu. Á Akureyri sé hægt að nýta flugvélarverkstæði sem fyrir eru og kaupa hluta þjónustunnar af einkaaðilum.
„Þannig að Akureyri er, held ég, klárlega staðurinn eins og mál standa í dag,“ segir hann.
Hér er hægt að nálgast viðtalið í heild sinni:
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗