Óvissa um framtíð fyrirliða Liverpool

Virgil van Dijk.

Virgil van Dijk. AFP/Paul Ellis

Framtíð fyrirliðans Virgil van Dijk hjá enska knattspyrnufélaginu Liverpool er óljós en samningur hans rennur út næsta sumar.

Hollendingurinn segist ekki hafa áhyggjur af stöðunni en bæði hann og félagið þurfa að taka mikilvæga ákvörðun á næstu mánuðum.

Van Dijk, sem er 35 ára, hefur ekki útilokað að yfirgefa félagið, þó að mestar líkur séu taldar á að hann muni framlengja samning sinn.

Hann hefur áður verið í svipaðri stöðu og skrifaði undir nýjan tveggja ára samning í apríl 2025. Hann er enn einn besti miðvörður ensku úrvalsdeildarinnar og leiðtogi liðsins.

Van Dijk er með um 400 þúsund pund í vikulaun. Ekki er búist við niðurstöðu í samningaviðræðunum á næstunni og gætu þær haldið áfram inn í árið 2027.

Van Dijk getur samið við önnur félög í janúar og eru AC Milan og Juventus sögð fylgjast með stöðu hans. Félög í Tyrklandi hafa einnig áhuga, en eins og staðan er þó reiknað með að hann verði áfram á Anfield.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab