David Beckham framleiðir kvikmynd um algjöra goðsögn
David Beckham vinnur nú að gerð kvikmyndar um líf George Best, eins frægasta leikmanns í sögu Manchester United.
Samkvæmt The Sun er framleiðslufyrirtæki Beckham, Studio 99, komið af stað með verkefnið en það er enn á frumstigi.
Best var einn hæfileikaríkasti knattspyrnumaður sinnar kynslóðar en líf hans utan vallar einkenndist af mikilli frægð og baráttu við áfengisfíkn.
„Hann var knattspyrnusnillingur sem glímdi við sína djöfla. Líf hans er stórmerkileg saga,“ sagði heimildarmaður The Sun.
Best lék 470 deildarleiki fyrir United og skoraði 179 mörk. Hann lést árið 2005, aðeins 59 ára gamall.
Beckham, sem sjálfur klæddist treyju númer sjö hjá United líkt og Best, hefur áður framleitt vinsæla heimildarþáttaröð um eigið líf fyrir Netflix.
Ekki hefur verið tilkynnt hvenær kvikmyndin verður frumsýnd.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗