Réttarhöld framundan í Straumsvíkurmálinu: Hverjir eru sakborningarnir?

Aðalmeðferð í svokölluðu Straumvíkurmáli hefst við Héraðsdóm Reykjaness þann 3. desember næstkomandi og stendur til 8. desember. Um er að ræða stærsta fíkniefnamál í Íslandssögunni en það varðar smygl á 106,2 kg af kókaíni til landsins. 

Sakborningar í málinu eru alls níu, þar af sex Íslendingar, þeir Lúther Ólason, Lárus Einarsson og Atli Freyr Fjölnisson. Erlendu ríkisborgararnir eru þeir Vasile Costache og Corneliu Radulescu frá Rúmeníu, Arthur De Araujo Faria, Eziquiel De Lima Pereira og Wagner Alexandre De Silva frá Brasilíu, og Portúgalinn Paulo Jorge Pinto Viera De Faria.

Í fyrsta lið ákærunni eru þeir Vasile Costache, Arthur De Araujo Faria, Corneliu Radulescu, Eziquiel De Lima Pereira og Wagner Alexandre De Silva ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot. Eru þeir sagðir hafa staðið saman að innflutningi á 106,2 af kókaíni en efnin voru falin í sjókistu flutningaskipsins Koznitza sem kom hingað til lands laugardaginn 23. júní 2026 frá Brasilíu. Fíkniefnin voru fjarlægð af lögreglu þann 21. júni 2026 og gerviefni sett í staðinn. 

Syntu eftir fíkniefnunum

Í ákæru Héraðssaksóknara í málinu segir að Vasile hafi ekið þeim Eziquiel, Wagner og Arthur að skolphreinsistöðinni í Hraunavík, þar sem þeir fluttu köfunarbúnað úr bílnum og niður í fjöru. Laust fyrir miðnætti ók Vasile á brott en þremenningarnir urðu eftir. Rétt eftir miðnætti lögðust Eziquiel og Wagner til sunds og syndu að skipinu Koznitza, þar sem það lá bundið við bryggju í Straumsvík, og inn í sjókistuna, sóttu gerviefnin og syntu með þau til baka að skólhreinistöðinni. Þar beið Arthur þeirra og aðstoðaði þá við að koma efnunum á land. 

Corneliu kom síðan akandi að skólphreinsistöðinni um kl. 1:40 um nóttina og voru gerviefnin flutt út í farangursrými bílsins. Hann ók síðan á brott ásamt Arthur og lagði bílnum nálægt dvalarstað þeirra að Hjallahlíð í Mosfellsbæ. 

Laust fyrir kl. 2 um nóttina kom Vasile öðru sinni að skólphreinisstöðinni og sótti Eziquiel og Wagner, ásamt köfunarbúnaðinum og ók þeim að dvalarstað þeirra að Strand Hotel Apartments við Fjarðargötu í Hafnarfirði.

Daginn eftir ók Arthur með gerviefnin að íbúðinni í Hjallahlíð, bar þau inn í íbúðina og þeir Arthur og Corneliu settu 30 kg af efnunum í ferðatösku og bakpoka. 

Sama dag flutti Coneliu efnin að Skemmuvegi í Kópavogi og afhenti þau samkvæmt fyrirmælum frá Vasile og Arthur.

Portúgalinn Paulo Jorge Pinto Viera De Faria er ákærður fyrir hlutdeild í brotinu með því að hafa flutt kafarabúning til landsins frá Róm á Ítalíu sem notaður var til að synda eftir efnunum. Skildi hann kafarabúninginn eftir við ruslatunnu við Kex Hostel í Reykjavík mánudagskvöldið 22. júní að loknu samtali við Arthur. 

Reyndu að taka á móti 30 kg af kókaíni

Íslendingarnir Lúther Ólason, Lárus Einarsson og Atli Freyr Fjölnisson eru ákærðir fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrot með því að hafa miðvikudaginn 24. júní 2026 reynt í sameiningu að taka á móti 30 kg af kókaíni frá þeim Corneliu, Arthur og Vasile, við Skemmuveg 34 í Kópavogi. 

Atli Freyr gaf Lúther og Lárusi fyrirmæli og leiðbeiningar um móttöku efnanna og Vasile og Arthur gáfu  Corneliu leiðbeiningar um afhendingu efnanna.

Lárus var í samskiptum við Arthur og Atla á samskiptaforritinu Signal og sendi Arthur m.a. mynd af Skemmuvegi 34 á Google Maps, hann sendi einnig Atla skilaboðin „mættur“.

Í ákærunni er krafist upptöku á efnunum auk upptöku á símtækjum ákærðu. 

Búast má við því að dómur falli í málinu í janúar á næsta ári.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab