Svona langan tíma tekur að hlaða niður GTA VI á Íslandi – Sláandi munur á löndum

Kristinn H. Guðnason

Föstudaginn 20. nóvember 2026 17:30

Allir eru að tala um GTA VI. Mynd/Getty

Það tekur að meðaltali 2 klukkustundir og 3 mínutur að hlaða niður tölvuleiknum GTA VI á Íslandi. Í sjö löndum er niðurhalið hraðara.

Þetta kemur fram í nýrri úttekt Speedgeo sem mælir hraða Internetsins á milli landa. Ísland er í 8. sæti á heimsvísu með hraðann 227.9 Mb/s (mebæt á sekúndu).

Leikjaþyrstir netverjar í Lúxemborg eru þeir langheppnustu í heimi. Þar tekur aðeins 53 mínútur að hlaða leiknum niður og er hraðinn um tvöfaldur þess lands sem kemur á eftir, það er Spánar þar sem það tekur 1 klukkutíma og 43 mínútur að hlaða hinum eftirsótta GTA VI niður á leikjatölvuna.

Önnur lönd sem eru með hraðara niðurhal en Ísland eru Síle, Frakkland, Perú, Írland og Portúgal.

Í Bandaríkjunum tekur niðurhalið 2 tíma og 17 mínútur, í Bretlandi 2 tíma og 28 mínútur, í Danmörku heila 3 tíma og 5 mínútur og í Noregi 4 tíma og 1 mínútu. Meðaltal heimsins er 3 tímar og 49 mínútur.

Sjá einnig:

Allt sem þú gætir viljað vita um GTA VI

Almennt séð er nethraðinn minni í þróunarlöndum og löndum þar sem stríð geisa eða hafa geisað á undanförnum árum og skemmt innviði.

Lengstur er niðurhalstíminn í Sýrlandi. Þar er nethraðinn aðeins 7,6 Mb/s og því tekur 61 klukkutíma og 24 mínútur að hlaða GTA VI niður. Hraðinn er litlu meiri í löndum eins og Kúbu, Afganistan, Jemen og Líbíu.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab