Öskraði af sársauka við aftökuna

Dennes var dæmdur til dauða fyrir morðið á demantssalanum Janos Szucs árið 1996. Skjáskot/X

Bandarískur fangi er sagður hafa öskrað af sársauka við aftöku sína í Texas. Aftakan stóð í meira en klukkustund.

„Þetta virkar ekki eins og það á að gera,“ sagði hinn sjötugi Reinaldo Dennes, þegar verið var að sprauta hann með lyfinu pentóbarbítal, að sögn vitna.

Talskona fangelsismálastofnunar Texas sagði að árangurslaust hefði verið reynt að finna æðar fyrir sprauturnar en bætti við að Dennes hefði kvartað undan sársauka á stöðum líkamans þar sem engin tilraun hafði verið gerð til að sprauta.

Mál Dennes kemur nokkrum vikum eftir misheppnaða aftöku Christu Pike, sem lifði af tvo banvæna skammta og er talin eina manneskjan sem hefur lifað af aftökutilraun með banvænni sprautu.

Langversta aftaka sem hann hafi séð

Að því er BBC greinir frá var Dennes dæmdur til dauða fyrir morðið á Janos Szucs árið 1996, demantasala sem fannst skotinn mörgum skotum. Aftaka hans fór fram sama dag og annar fangi var tekinn af lífi í Flórída. Aftökur með banvænu lyfi standa venjulega yfir frá nokkrum mínútum upp í meira en klukkustund.

Michael Graczyk, fréttamaður Associated Press sem hefur orðið vitni að mörgum slíkum aftökum, lýsti því hvernig vitnin hefðu þurft að bíða óvenjulengi áður en þeim var hleypt inn í aftökuklefann. Að hans sögn stafa slíkar tafir yfirleitt af því að fangi streitist á móti eða að erfiðlega gengur að finna æðar.

Þegar vitnunum var loks hleypt inn hrópaði Dennes nánast samstundis: „Sársaukinn! Áfram! Áfram!“ sagði Graczyk. Hann blótaði síðan og bað „föðurinn“ að „taka þennan sársauka“. Því næst hrópaði hann: „Hægri fóturinn á mér er að drepa mig!“ og lýsti því sem krampa. Eftir annað blótsyrði stundi hann og sagði: „Ég held að þetta sé ekki eðlilegt.“

Annað vitni, séra Jeff Hood, sagði við USA Today að aftaka Dennes hefði verið „langversta“ aftakan sem hann hefði séð.

„Hann [Dennes] öskraði: „Fóturinn minn, fóturinn minn, fóturinn minn,““ sagði Hood. „Hann öskraði tvisvar: „Þetta virkar ekki eins og það á að gera.““

Gæti valdið „óþarfa sársauka og þjáningu“

Notkun pentóbarbítals hefur sætt aukinni gagnrýni síðan Pike, fimmtugur dæmdur morðingi, lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í september. Hún var flutt á sjúkrahús í lífshættulegu ástandi og hefur síðan snúið aftur í fangelsi.

Misheppnuð aftaka hennar vakti heimsathygli og hneykslun.

Pentóbarbítal er öflugt róandi lyf sem hægir á starfsemi líkamans, þar á meðal taugakerfinu. Læknar nota það stundum til að meðhöndla tiltekna kvilla en í stórum skömmtum er einnig hægt að nota það sem banvæna sprautu til að valda dauða.

Notkun þess í banvænum sprautum sætti aukinni gagnrýni á síðasta ári eftir að úttekt bandarísku alríkisstjórnarinnar í stjórnartíð Bidens vakti áhyggjur af því að lyfið gæti valdið „óþarfa sársauka og þjáningu“.

Stjórn Bidens bannaði notkun þess við aftökur á vegum alríkisins, en það batt ekki einstök ríki, sem geta valið sínar eigin aðferðir.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab