Haukar mæta Aftureldingu: „Hefðum getað fengið léttari drátt“
Haukar, ríkjandi bikarmeistarar karla í handknattleik, fá krefjandi verkefni í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar þegar liðið mætir Aftureldingu á útivelli en dregið var í hádeginu í dag.
Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, hefði gjarnan viljað fá léttari andstæðing.
„Þetta er klárlega erfiður andstæðingur. Við vorum að spila við þá um daginn og þekkjum því vel hvað bíður okkar.
Við hefðum auðvitað getað fengið léttari drátt, en þetta verður hörkuleikur og skemmtilegt verkefni. Þetta er síðasti leikurinn fyrir jól og við hlökkum til,“ sagði Gunnar í samtali við mbl.is.
Afturelding eitt besta lið landsins
Haukar hafa verið á miklu skriði í deildinni og eru með fullt hús stiga eftir ellefu leiki.
„Við erum nýbúnir að spila við Aftureldingu þar sem við unnum sannfærandi, en það segir ekki allt um stöðu Aftureldingar. Við erum auðvitað með gott lið og óttumst ekkert og ætlum að halda okkur á sigurbraut. Við hlökkum til að mæta aftur í Mosfellsbæinn.“
Hann telur Mosfellinga eitt af fjórum bestu liðum landsins.
„Afturelding er eitt af fjórum bestu liðum landsins að mínu mati. Þar er góð blanda af yngri og eldri leikmönnum og mikla reynslu að finna í hópnum. Þetta er því alls ekki verkefni sem við tökum létt,“ sagði hann.
Leikurinn er síðasti leikur Hauka fyrir jól og pressan á liðinu er mikil, enda vilja öll lið slá út ríkjandi bikarmeistara.
„Við erum vanir því að standa undir pressunni. Það er enn þá mánuður í þetta en þetta er einn mikilvægasti leikur ársins. Það er klárt mál að við þurfum að vera í toppstandi þegar að þessum leik kemur," sagði Gunnar við mbl.is.
Hafa titil að verja
Haukar fögnuðu bikarmeistaratitli í byrjun árs og sagði Gunnar að með titlinum hefði ákveðinn múr verið rofinn, en tíu ár voru þá liðin frá síðasta stóra titli karlaliðs Hauka, Íslands- eða bikarmeistaratitli.
„Þetta var ákveðinn múr sem við brutum. Fyrir þennan hóp var þetta líka fyrsti stóri titillinn. Hann hefur gert mikið fyrir okkur og hjálpað liðinu áfram í vetur,“ sagði Gunnar Magnússon.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗