Lögreglumönnum fjölgað þrátt fyrir uppsagnir

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir markmið ríkisstjórnarinnar um að fjölga lögreglumönnum hafa náðst. 

Hún ræddi við blaðamann að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. 

Hún var spurð hvort uppsagnir og ráðningabann hjá embætti ríkislögreglustjóra væru á skjön við þá yfirlýstu stefnu hennar að efla löggæslu á Íslandi. 

Hefur gert meira en bara að tala

Þorbjörg segir að tali um eflingu löggæslu hafi verið fylgt eftir með aðgerðum. 

„Ríkisstjórnin jók fjárfestingu í löggæslu um 1,2 milljarða króna þegar við fórum af stað og við fjölguðum lögreglumönnum um 50 talsins,“ segir hún í samtali við mbl.is.

Þorbjörg segir fjárframlög til lögreglu um allt land nema um 30 milljörðum króna, þar af fari um fimm milljarðar króna til embættis ríkislögreglustjóra. 

„Þar hefur þetta verið ákveðin staða varðandi reksturinn og sú saga er ekki alveg ný,“ segir hún og heldur áfram: „Nú hafa þau fækkað starfsmönnum sínum, held ég, um fimm. Mér skilst að þetta séu fyrst og fremst svokallaðir borgaralegir starfsmenn.“

Hún segir uppsagnir alltaf sárar og erfiðar en að markmið ríkisstjórnarinnar um að fjölga lögreglumönnum hafi raungerst. 

„Lögreglumenn starfandi í landinu eru fleiri í dag en þegar ríkisstjórnin tók við.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab