Lögregla fær forræði ef skilyrði myndast til leitar

Pétur G. Markan er bæjarstjóri í Grindavík.

Pétur G. Markan er bæjarstjóri í Grindavík. Ljósmynd/Aðsend

Pétur Markan, bæjarstjóri í Grindavík, segir að hægt sé að haga sprunguviðgerðum í Stamphólsgjá þannig að þær auki líkurnar á að hægt verði að leita á ný að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar.

Viðgerðirnar munu að sögn Péturs að lokum ná að húsinu við Vesturhóp þar sem Lúðvík féll ofan í sprungu. Þá verði hægt að taka frekari ákvörðun. 

„Þetta er matskennt en það er hægt að nálgast framkvæmdina þannig að við getum aukið líkurnar á því að skilyrði muni myndast til leitar,“ segir Pétur.

Grindavíkurbær hefur tekið forystu í samskiptum við fjölskyldu Lúðvíks vegna framkvæmdanna. Pétur segir að möguleikinn á nýrri leit tengist því hvernig viðgerðirnar ganga við húsið.

„Það merkir að við höfum tekið ákveðna forystu í samskiptum við fjölskyldu Lúðvíks, því við lítum svo á að mögulega verði forsendur til leitar þegar kemur að sprunguviðgerðum við húsið,“ segir hann.

Lögreglan hafi lýst áhuga á frekari leit 

Pétur segir að bærinn hafi fundað með Margréti Kristínu Pálsdóttur, lögreglustjóra á Suðurnesjum. Að hans sögn er eindreginn vilji hjá henni til að hefja leit á ný ef aðstæður leyfa.

„Ef að það skapast skilyrði til leitar og forsendur, þá mun lögregla aftur taka forræði yfir svæðinu og þá hefst leit,“ segir Pétur.

Lúðvík lést 10. janúar 2024 þegar hann féll ofan í sprungu við vinnu við hús við Vesturhóp. Lögreglan leitaði síðast að líkamsleifum hans 27. október 2026. Tveir leitarmenn sigu þá niður í sprunguna en fundu engar vísbendingar um hvar líkamsleifarnar væri að finna. Lögreglan lauk formlegri leit sama dag þar sem frekari aðgerðir voru taldar of áhættusamar samkvæmt fyrirliggjandi áhættumati

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab