Stærðarinnar transfáni blakti af svölum spítalans
Innlent | mbl | 20.11.2026 | 16:33
Ekki liggur fyrir hver flaggaði stærðarinnar transfána sem blakti af svölum Landspítalans í Fossvogi um stund í dag.
Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum hafði einhver farið upp á 14. hæð, þar sem engar sjúkrastofur eru, og hengt fánann fram af svölunum.
Öryggisverðir á spítalanum urðu varir við að stórt flagg héngi af svölunum og fjarlægðu það.
Í frétt RÚV um málið má sjá mynd af fánanum sem er greinilega þó nokkrir metrar að lengd.
Leiða má líkum að því að uppátækið tengist alþjóðlegum minningardegi trans fólks sem er haldinn 20. nóvember ár hvert.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗