Staðfestir synjun í máli fimm manna fjölskyldu
Fjölskyldan byggði á því að stjórnvöldum hefði verið óheimilt að láta annmarka á upplýsingagjöf foreldranna leiða til synjunar á umsóknum barnanna um dvalarleyfi. Landsréttur benti á að foreldrar kæmu fram fyrir hönd ólögráða barna sinna og að skyldan til að veita upplýsingar og aðstoð hvíldi því á foreldrunum. Ljósmynd/Colourbox
Landsréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli fimm manna fjölskyldu sem hafði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum.
Dómstóllinn taldi að misbrestur foreldra á að veita stjórnvöldum upplýsingar og aðstoð gæti haft áhrif á afgreiðslu umsókna barna þeirra um dvalarleyfi samkvæmt ákvæðinu sem reyndi á í málinu, svo fremi sem það stríddi ekki gegn hagsmunum barnanna.
Fjölskyldan, sem er með ríkisfang bæði í Sýrlandi og Venesúela, kom hingað frá Venesúela og sótti um alþjóðlega vernd 14. febrúar 2023.
Útlendingastofnun synjaði umsóknunum í janúar 2024. Kærunefnd útlendingamála staðfesti synjunina 1. nóvember sama ár, rúmum 20 mánuðum eftir að umsóknirnar bárust.
Tímamörkin liðin þegar kærunefndin úrskurðaði
Samkvæmt þágildandi ákvæði útlendingalaga var heimilt að veita dvalarleyfi af mannúðarástæðum að uppfylltum tilteknum skilyrðum ef niðurstaða um umsókn um alþjóðlega vernd lá ekki fyrir á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða. Þegar umsækjandi var barn var miðað við 16 mánuði. Eitt skilyrðanna var að umsækjandi hefði veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn málsins.
Fjölskyldan hafði náð tímamörkunum þegar kærunefndin úrskurðaði. Nefndin taldi foreldrana hins vegar ekki hafa uppfyllt skilyrðið um upplýsingagjöf og aðstoð. Frásagnir þeirra um atriði sem skiptu verulegu máli höfðu breyst við meðferð málsins og nefndin taldi gögn sem þau lögðu fram ótraust í ljósi niðurstöðu rannsóknar lögreglu. Landsréttur taldi rök og gögn fjölskyldunnar ekki hnekkja því mati.
Töldu börnunum fyrir bestu að fylgja foreldrunum
Fjölskyldan byggði á því að stjórnvöldum hefði verið óheimilt að láta annmarka á upplýsingagjöf foreldranna leiða til synjunar á umsóknum barnanna um dvalarleyfi. Landsréttur benti á að foreldrar kæmu fram fyrir hönd ólögráða barna sinna og að skyldan til að veita upplýsingar og aðstoð hvíldi því á foreldrunum.
Kærunefndin hafði metið aðstæður barnanna sérstaklega. Landsréttur taldi gögn málsins benda til þess að þeim væri fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum. Ein dætranna varð 18 ára meðan málið var til meðferðar hjá kærunefndinni. Nefndin tók engu að síður mið af ungum aldri hennar við mat á stöðu hennar og Landsréttur taldi ekki sjáanlegt að sérstök afgreiðsla á umsókn hennar hefði haft áhrif á niðurstöðuna.
Ákvæðið um dvalarleyfi vegna langs málsmeðferðartíma var fellt úr gildi í mars. Það gildir þó áfram við meðferð umsókna sem höfðu þegar náð tímamörkunum þegar lagabreytingin tók gildi.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/63/86/1638617.jpg)