„Ég veit meira um íslam en talíbanarnir“
Ziauddin Yousafzai kom hingað til lands vegna Heimsþings kvenleiðtoga sem haldið var í Hörpu í vikunni. Hann vill að Ísland verði í fararbroddi í baráttunni gegn kynjaaðskilnaðarstefnu talíbana. Ljósmynd/María Kjartansdóttir
Ziauddin Yousafzai, faðir friðarverðlaunahafans Malölu Yousafzai, vill að Ísland verði í fararbroddi í baráttunni fyrir því að kynjaaðskilnaðarstefna verði skilgreind sem sérstakur glæpur gegn mannúð í alþjóðalögum.
Hann þakkar íslenskum stjórnvöldum stuðninginn við afganskar konur og segir smæð Íslands enga fyrirstöðu í þeirri baráttu.
Ziauddin kom hingað til lands vegna Heimsþings kvenleiðtoga sem haldið var í Hörpu fyrr í vikunni. Í samtali við mbl.is ræðir hann kúgun talíbana í Afganistan og mikilvægi þess að alþjóðasamfélagið láti til sín taka.
Dóttir hans, Malala, vakti heimsathygli árið 2012 þegar pakistanskir talíbanar skutu hana í höfuðið á leið heim úr skóla. Hún lifði árásina af og hélt áfram baráttu sinni fyrir menntun stúlkna. Tveimur árum síðar hlaut hún friðarverðlaun Nóbels, aðeins 17 ára gömul, yngst allra í sögu verðlaunanna.
Malala Yousafzai hefur um árabil barist fyrir menntun stúlkna og hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2014, yngst allra í sögu verðlaunanna. Faðir hennar, Ziauddin Yousafzai, hefur staðið þétt við bakið á henni í baráttunni. AFP
Vonast eftir forystu Íslands
Ziauddin fagnar stuðningi íslenskra stjórnvalda við kröfu afganskra kvenna um að kynjaaðskilnaðarstefna verði skilgreind sem glæpur í alþjóðalögum. Hann vonast til að Ísland beiti sér áfram í málinu ásamt öðrum ríkjum og að breytingarnar nái fram að ganga á næstu einu til tveimur árum.
Ísland hefur þegar lýst yfir stuðningi við að kynjaaðskilnaðarstefna verði skilgreind sem glæpur í alþjóðalögum, meðal annars á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í september.
Í sama mánuði fundaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra með Malölu Yousafzai í New York. Þar ræddu þær meðal annars réttindi kvenna og stúlkna í Afganistan, eins og mbl.is greindi frá.
Spurður hvort jafn lítið ríki og Ísland geti haft áhrif á alþjóðavettvangi segir Ziauddin stærðina ekki ráða úrslitum.
„Þetta snýst ekki um hvort lönd séu lítil eða stór. Við sjáum slæma hluti gerast í stórum og fjölmennum ríkjum en stórkostlega hluti í litlum ríkjum sem standa fyrir ákveðnum gildum,“ segir hann.
Ziauddin fer jafnframt fögrum orðum um Íslendinga, sem hann segir hlýlega og gestrisna. Það sé þó fyrst og fremst afstaða landsins til mannréttinda sem skipti máli.
„Þegar ég sé Ísland styðja afganskar konur og stúlkur í baráttu þeirra gerir það landið stórt í augum heimsins,“ segir hann.
Hann leggur jafnframt áherslu á mikilvægi samkenndar og minnir á að stúlkur á Íslandi og í Afganistan brosi, hlæi og gráti á sama hátt, þótt aðstæður þeirra séu gerólíkar.
„Ég veit meira um íslam en talíbanarnir“
Frá því að talíbanar tóku aftur völdin í Afganistan árið 2021 hafa þeir skert réttindi kvenna og stúlkna með sífellt umfangsmeiri takmörkunum. Stúlkum er bannað að ganga í skóla eftir sjötta bekk og konur sæta víðtækum hömlum á atvinnuþátttöku, ferðafrelsi og þátttöku í samfélaginu.
Mannréttindasérfræðingar Sameinuðu þjóðanna hafa lýst þessu kerfisbundna misrétti sem kynjaaðskilnaðarstefnu. Ziauddin tekur undir þá lýsingu og gagnrýnir sérstaklega að talíbanar réttlæti kúgunina í nafni íslams.
„Ég er múslimi. Ég hef lesið Kóraninn spjaldanna á milli. Ég veit meira um íslam en talíbanarnir. Það er ég alveg viss um,“ segir hann og hafnar því að kúgun kvenna eigi sér stoð í íslam.
Hann nefnir meðal annars Khadiju, fyrstu eiginkonu Múhameðs spámanns, sem var viðskiptakona, og Aishu, eina eiginkvenna hans, sem var þekkt fyrir lærdóm sinn og þátttöku í stjórnmálum.
Með þessu vill hann undirstrika að sjálfstæði kvenna og þátttaka þeirra í atvinnulífi og stjórnmálum eigi sér fordæmi í sögu íslams. Stefna talíbana sé því bæði andstæð trúarbrögðunum og ómannúðleg.
„Grafreitur fyrir konur og stúlkur“
Ziauddin segir kúgun kvenna og stúlkna í Afganistan meðal alvarlegustu mannréttindabrota heims. Þótt friður kunni að virðast ríkja í landinu sé raunveruleikinn allt annar fyrir þær.
„En hvað er að gerast undir þessum svokallaða friði? Þetta er grafreitur fyrir konur og stúlkur í Afganistan,“ segir hann.
Hann hvetur leiðtoga heimsins og mannréttindasinna til að beina aukinni athygli að stöðu afganskra kvenna og stúlkna.
Vonir hans standa meðal annars til Íslands. Ziauddin vill að íslensk stjórnvöld haldi áfram að beita sér fyrir réttindum afganskra kvenna og að skilaboð hans nái til þeirra sem geti haft áhrif á framgang málsins.
Ítarlegra viðtal við Ziauddin Yousafzai birtist í laugardagsblaði Morgunblaðsins. Þar ræðir hann meðal annars um uppeldi Malölu, hlutverk feðra í jafnréttisbaráttunni og hvernig feðraveldið bitnar ekki síður á körlum en konum.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

