Alvarleg hnífaárás á Kanaríeyjum

Karlmaður um fertugt særðist alvarlega í hnífaárás í miðborg Las Palmas á Gran Canaria aðfaranótt föstudags.

Canarian Weekly greinir frá. 

Neyðarlínunni 112 á Kanaríeyjum barst tilkynning um árásina á Calle Cano skömmu eftir klukkan hálffimm um morguninn. Tvær sjúkrabifreiðar voru sendar á vettvang og sjúkraflutningamenn hlúðu að manninum, sem hafði hlotið nokkra alvarlega skurði.

Manninum var veitt bráðameðferð á vettvangi og hann síðan fluttur á háskólasjúkrahúsið Insular í Las Palmas.

Lögreglumenn frá bæði ríkislögreglunni og lögreglu borgarinnar komu á vettvang. Ekki höfðu borist frekari upplýsingar um líðan mannsins eftir komuna á sjúkrahús eða hvort einhver hefði verið handtekinn vegna árásarinnar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab