Arteta setur strangt bann á leikmenn sína
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Arsenal, hefur bannað leikmönnum liðsins að velja sjálfa sig eða liðsfélaga sína í Fantasy-lið sín.
Blaðamaðurinn Charles Watts greinir frá þessu. Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að Christos Tzolis setti sjálfan sig í FPL-lið sitt fyrir leikinn gegn Liverpool og gerði sig meira að segja að fyrirliða. Með því gaf hann nokkuð skýrt til kynna að hann yrði í byrjunarliðinu.
Arsenal vann leikinn 1:0 og situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fimm stiga forskot.
Fantasy-leikurinn er gríðarlega vinsæll og taka margir leikmenn og starfsmenn félaganna þátt í honum. Hann nýtur einnig mikilla vinsælda hér á landi.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗