Baugur Bjólfs hlaut alþjóðleg verðlaun

Síðastliðið mánudagskvöld var veitt við athöfn í Konunglegu bresku óperunni í London viðurkenning fyrir hönnun Baugs Bjólfs, útsýnispalls við Seyðisfjörð. Verkefnið hlaut hin virtu Deezen-verðlaun fyrir árið 2026, sem smáverkefni ársins. Hlaut verkefnið bæði viðurkenningu dómnefndar og varð hlutskarpast í atkvæðagreiðslu gesta. 

Alls voru 4.300 verkefni frá 91 landi með í keppninni. 

Höfundar Baugs Bjólfs eru Arkibygg arkitektar & ESJA Architecture. Mannvirkið var hannað og byggt fyrir sveitarfélagið Múlaþing á árunum 2024-2025. 

Sjá nánar á Facebook-síðu Arkibygg arkitekta. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab