Svarthöfði skrifar: Löglegt en siðlaust – sannleikurinn um Sjálfstæðisflokkinn kom samt fram
Svarthöfði er eldri en tvævetur og hefur fylgst af áhuga með pólitík í áratugi. Hvers vegna? Það er góð spurning, eins leiðinleg og pólitíkin getur orðið, en líklega er áhugi á pólitík bara eins og gott veirusmit. Veiran situr í manni það sem eftir er, jafnvel þótt maður sé einkennalaus á köflum.
Á þessum áratugum hefur Svarthöfði séð ýmsa þingmenn komast upp á kant við sína flokka, sem aftur hefur leitt til þess að menn hafa ýmist farið í fýlu og farið í sérframboð, boðið fram BB eða DD lista, eða jafnvel gengið úr flokkum. Einu sinni mynduðu nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins vinstri stjórn sem flokkurinn vildi ekki vera í. Varaformaður flokksins varð forsætisráðherra í þeirri stjórn.
Í vikunni varð Svarthöfði vitni að nokkru sem hann minnist ekki að hafa séð áður. Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, tilkynnti að hann væri hættur í Viðreisn og genginn í Sjálfstæðisflokkinn, rétt eins og ekkert annað væri sjálfsagðara.
Í mjög langri yfirlýsingu sagði Ingvar Viðreisn hafa svikið kosningaloforð og hann liti á það sem vik við kjósendur ef hann starfaði áfram innan Viðreisnar. Hann gleymdi reyndar að geta þess að sjálfur hafði hann greitt atkvæði með þessum málum sem hann tíndi til sem svik Viðreisnar við kjósendur. Niðurstaða hans var að best væri að bæta fyrir „svikin“ við kjósendur Viðreisnar í Norðaustur með því að ganga í Sjálfstæðisflokkinn.
Svarthöfði veit ekki betur en að kjósendum Viðreisnar hafi staðið til boða að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í síðustu kosningum. Þeir höfnuðu því boði og kusu Viðreisn þess í stað. Kannski vegna þess að Viðreisn og Sjálfstæðisflokkurinn eru á öndverðum meiði í öllum helstu málum. Viðreisn frjálslyndur og markaðssinnaður flokkur sem leggur áherslu á samstarf við þær þjóðir sem hafa svipaða sýn og hagsmuni og við Íslendingar. Sjálfstæðisflokkurinn er hins vegar íhaldssamur sérhagsmunagæsluflokkur sem heldur að árið sé enn 1949.
Ingvari var tekið fagnandi í Sjálfstæðisflokknum. Formaðurinn bauð hann „velkominn heim“ og brosti út að eyrum. Ekki var gleði varaformannsins minni nema bara hann brosir aldrei út að eyrum.
Svarthöfði varð hugsi yfir þessum fögnuði hjá formanni Sjálfstæðisflokksins. Þurfa menn ekki fyrst að fara að heiman til að koma aftur heim? Engin hefur nokkurn tíma heyrt þess getið að Ingvar Þóroddsson hafi verið virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins eða verið kenndur við þann flokk fyrr en núna, þegar hann er genginn í flokkinn. Hann var hins vegar oddviti Röskvu, félags vinstri manna og sósíalista, í Háskóla Íslands fyrir örfáum árum. Viðkomustaður Sjálfstæðismanna í stúdentapólitíkinni er jafnan Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta.
Loksins sá Svarthöfði ljósið. Þegar Guðrún Hafsteinsdóttir bauð Ingvar „velkominn heim“ var það auðvitað „Freudian slip“ af dýrari gerðinni. Hugmyndafræðilega er Ingvar kominn heim. Sjálfstæðisflokkurinn er nefnilega í raun og veru orðinn íhaldssamur vinstri flokkur. Ekki þarf frekari vitnanna við en að flokkurinn sat alsæll í vinstri stjórn undir forsæti Katrínar Jakobsdóttur, formanns VG, í sjö ár. Þetta veit undirmeðvitund Guðrúnar Hafsteinsdóttur og annarra forystumanna flokksins þó að meðvitað sé það ekki sagt upphátt.
Annars virðast vistaskipti þingmannsins unga falla í grýttan jarðveg, nema kannski í þingflokki Sjálfstæðismanna. Flestum blöskrar að þessi ungi þingmaður, sem ekkert hefur borið á inni á þingi, skuli líta svo á að hann geti fært þingsæti, sem sjálfboðaliðar Viðreisnar börðust fyrir, til stjórnmálaflokks sem hefur allt aðra stefnu en Viðreisn. Löglegt kannski en fullkomlega siðlaust.
Í aðsendri grein á Vísi skrifar Gunnar Salvarsson undir fyrirsögninni „Segðu af þér þingmennsku, Ingvar!“:
„Mér finnst bæði sanngjarnt og eðlilegt að krefjast þess að þingmaður sem gengur í annan flokk á miðju kjörtímabili víki úr þingsæti. Varaþingmaður af sama lista taki við. Í tilviki Ingvars eru rökin einföld. Atkvæði greidd lista Viðreisnar árið 2024 komu honum á þing. Þegar hann gekk í þingflokk Sjálfstæðisflokksins fyrr í vikunni fjölgaði þar um einn þingmann án þess að kjósendur hefðu greitt þeim flokki atkvæðin sem skiluðu sætinu. Í stað þess að ganga stjórnarandstöðunni á hönd hefði verið heiðarlegast af Ingvari að ganga á dyr og segja við þingheim: „Ég rata út.“
Ingvar er sagður hafa fylgt sannfæringu sinni. Gott og vel. Það er ljómandi fínt að þingmenn greiði atkvæði eftir eigin sannfæringu, líka þegar það kemur sér illa fyrir flokkinn. Ingvar gat dregið stuðning sinn við ríkisstjórnina til baka, sagt sig úr þingflokknum og setið áfram utan þingflokka. Sannfæring hans getur skýrt hvers vegna hann fór úr Viðreisn. Eftir stendur spurningin hvers vegna honum þótti rétt að taka sætið með sér í annan þingflokk.“
Já og amen, segir Svarthöfði.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗