Ísland afhendir króatískum yfirvöldum fanga
Maðurinn afplánar fjögurra ára og sex mánaða fangelsisdóm hér á landi vegna fíkniefnalagabrots. Króatísk yfirvöld óska eftir afhendingu hans til að fullnusta átta mánaða eftirstöðvar fangelsisrefsingar vegna ólöglegra vopnaviðskipta. Ljósmynd/Colourbox
Landsréttur hefur staðfest ákvörðun um að afhenda króatískum yfirvöldum mann sem afplánar fangelsisdóm á Íslandi.
Maðurinn mótmælti afhendingunni vegna aðbúnaðar í króatísku fangelsi. Yfirvöld í Króatíu veittu sérstakar tryggingar um aðbúnað hans við upphaf afplánunar þar.
Landsréttur kvað upp úrskurð sinn 18. nóvember og staðfesti úrskurð Héraðsdóms Vesturlands frá 12. nóvember með vísan til forsendna hans.
Héraðsdómur hafði staðfest ákvörðun ríkissaksóknara um að verða við beiðni Króatíu á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar.
Taldi hættu á ómannúðlegri meðferð
Maðurinn byggði á því að afhendingin stríddi gegn mannréttindasáttmála Evrópu vegna hættu á ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Hann vísaði til eigin reynslu af gæsluvarðhaldi í Króatíu og skýrslna eftirlitsaðila sem lýstu mikilli yfirfyllingu og slæmum aðbúnaði. Samkvæmt íslenskum lögum ber að synja um afhendingu ef hún stríðir gegn sáttmálanum.
Héraðsdómur taldi gögnin benda til raunverulegrar hættu á slíkri meðferð ef ekki yrði gripið til sérstakra ráðstafana.
Ríkissaksóknari óskaði eftir nánari upplýsingum og fékk þá tryggingu frá yfirstjórn fangelsismála í Króatíu um að maðurinn yrði vistaður einn í klefa eða með í mesta lagi einum öðrum fanga. Honum yrði tryggt að minnsta kosti 4,245 fermetra rými að salernisaðstöðu frátalinni. Héraðsdómur taldi aðbúnaðinn standast lágmarkskröfur yrði staðið við fyrirheitin.
Afhendingu frestað til febrúar
Tryggingarnar ná til fyrstu vistunarinnar, sem að jafnaði tekur um 30 daga. Endanlegur afplánunarstaður verður ákveðinn að henni lokinni. Héraðsdómur taldi rannsóknarskyldu ríkissaksóknara ná til þeirra staða þar sem raunverulega væri fyrirhugað að vista manninn. Óvissa um hvar hann yrði vistaður síðar stóð því ekki í vegi fyrir afhendingu.
Maðurinn afplánar fjögurra ára og sex mánaða fangelsisdóm hér á landi vegna fíkniefnalagabrots. Króatísk yfirvöld óska eftir afhendingu hans til að fullnusta átta mánaða eftirstöðvar fangelsisrefsingar vegna ólöglegra vopnaviðskipta.
Ríkissaksóknari frestaði afhendingunni til 15. febrúar 2027, þegar gert er ráð fyrir að maðurinn geti átt kost á reynslulausn hér á landi.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗