Strætó dregur úr þjónustu

Strætó dregur úr þjónustu á nokkrum leiðum.

Strætó dregur úr þjónustu á nokkrum leiðum. mbl.is/Karítas

Leiðakerfi Strætó tekur breytingum í desember en dregið verður úr þjónustu á nokkrum leiðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó.

Þar segir að fyrst og fremst verði dregið úr þjónustu á leiðum þegar notkun er sem minnst.

„Breytingarnar haldast í hendur við mikla þjónustuaukningu á síðustu tveimur árum og eru hluti af því að almenningssamgöngur nýtist almenningi á höfuðborgarsvæðinu sem best þar sem þeirra er mest þörf,“ segir í tilkynningunni.

Breytingarnar taka gildi 1. desember næstkomandi og snúa að almennu leiðakerfi Strætó. Einnig verða gerðar sérstakar breytingar á þjónustu á ákveðnum tímabilum, svo sem um jól og sumar, þegar mun færri ferðast til vinnu og skóla. Þjónustuskerðingin byggir m.a. á mælingum á notkun Strætó þar sem notast var við handtalningar.

„Við útfærslu breytinganna var lögð áhersla á að þær hefðu sem minnst áhrif á ferðir farþega og reynt var að haga breytingum þannig að þar sem þjónusta er lögð niður sé hægt að komast leiðar sinnar með öðrum leiðum. Fjölmennustu leiðirnar, leiðir 1 og 6, haldast óbreyttar,“ segir í tilkynningunni.

Þær breytingar sem taka gildi 1. desember eru:

Síðustu ferðir á kvöldin á um helmingi leiða verða felldar niður, bæði á virkum dögum og um helgar. Þótt breytingarnar nái til um helmings leiða eru niðurfelldu ferðirnar aðeins 4,5% af heildarfjölda ferða á höfuðborgarsvæðinu og enn lægra hlutfall ef ferðir pöntunarleiða eru teknar með.

Þá verða gerðar breytingar á tímatöflum á annatíma á leiðum 3, 5 og 12 þar sem tímabil 10 mínútna tíðni verður stytt á þessum leiðum. Tíðni verður dregin saman úr 15 mínútum í 30 á leið 15 milli annatíma og á leið 19 á annatíma. Akstri um helgar verður hætt á leið 36 og á laugardögum á leið 17. Ein morgunferð kl. 6:33 verður felld niður frá Tungubökkum á leið 7.

Um jólin, frá 21. desember til 5. janúar, verða eftirfarandi breytingar á almennu leiðakerfi. Tíðni á annatíma á leiðum 3, 5 og 12 verður á 15 mínútna fresti í stað 10 áður. Leiðir 21, 24 og 31 aka á 30 mínútna fresti á annatíma í stað 15. Þá mun leið 8, Háskólaleiðin, aka á 30 mínútna fresti allan daginn. Svipað fyrirkomulag er fyrirhugað um sumarið framvegis.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab