Tímamót í sögu Ljóssins

Innlent | Morgunblaðið | 20.11.2026 | 16:00

Erna Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Ljóssins segir að nýja húsnæðið sé mun stærra en hið fyrra mbl.is/Eggert

Nýtt húsnæði Ljóssins, endurhæfingarmiðstöðvar fyrir krabbameinsgreinda, var opnað að Gylfaflöt í Grafarvogi í gær að viðstöddum ýmsum ráðamönnum.

Erna Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Ljóssins segir að nýja húsnæðið sé mun stærra en hið fyrra og þar skapist rými til að efla þjónustuna og bjóða betri aðstöðu fyrir endurhæfingu, stuðning, fræðslu og samveru.

Hún segir húsnæðið bjart og rúmgott og staðsetninguna í Grafarvogi bjóða upp á gott aðgengi og fallegt umhverfi. Nálægð við útivistarsvæði skapi jafnframt fjölmörg tækifæri til að tengja hreyfingu og útiveru enn betur við starfsemina.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Fjölmenni var við opnun nýja húsnæði Ljóssins.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab