Corny-stykki innkölluð
Innlent | mbl | 20.11.2026 | 16:06
Innköllunin einskorðast við þá vöru sem er merkt með best fyrir dagsetningunni 10. 09. 2027. Ljósmynd/Aðsend
Innnes ehf. hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, stöðvað sölu og innkallað frá viðskiptavinum Corny 0% Added sugar Chocolate Multi pack 6x20g þar sem varan uppfyllir ekki ýtrustu gæðakröfur framleiðandans.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Innes.
Innköllunin einskorðast við þá vöru sem er merkt með best fyrir dagsetningunni 10. 09. 2027.
Ef neytendur eiga vöruna með áðurnefndri best fyrir dagsetningu, er þeim bent á að skila vörunni í þá verslun sem hún var keypt í og fá hana bætta eða farga henni.
Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Innness ehf., í síma 532 4000 eða í gegnum netfangið
[email protected]
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗