Fyrstu myndir af HM-réttunum birtar
Bakaður þorskur, lambafille með blóðbergi og eftirréttur með sólberjum, súrmjólk og pistasíum. Samsett mynd/Skjáskot Instagram
„Við erum mætt til að setja ný viðmið fyrir önnur lið í keppnismatreiðslu,“ segir Ísak Aron Jóhannsson, fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins, í samtali við matarvef mbl.is.
Íslenska kokkalandsliðið hefur nú birt myndir af réttunum þremur sem það mun bera fram á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg á morgun.
Myndirnar birtust á Instagram-reikningi liðsins ásamt ítarlegum lýsingum á réttunum. Þá verður keppt í greininni Restaurant of Nations, þar sem íslenska liðið á að framreiða þriggja rétta máltíð fyrir 110 gesti.
Þorskur með stökkum roðflögum
Í forrétt býður liðið upp á bakað þorskflak með léttu fiskfarsi, wasabi-laufum og þöndum hrísgrjónum.
Með fiskinum er gúrka fyllt með salati úr þorski, eplum og sýrðum rjóma, ásamt stökku þorskroði. Þá fylgja hægþurrkaður tómatur, ragú úr grænum baunum, gljáð hafrarót og hafrarótarmauk. Rétturinn er borinn fram með hvítvíns- og appelsínusósu.
Bakaður þorskur með léttu fiskfarsi, stökku þorskroði og fjölbreyttu grænmetismeðlæti. Hvítvíns- og appelsínusósa fylgir réttinum. Ljósmynd/Skjáskot/Instagram
Lamb og humar í aðalhlutverki
Aðalrétturinn er lambafille með kryddmylsnu úr blóðbergi og skessujurt, ásamt humri í deighjúp.
Meðlætið er ekki síður fjölbreytt: stökk kartafla og rifið lambabógskjöt að hætti rillette, gulrófa af rauðrófuætt, smáir sveppir eldaðir í fitu og ostakrem úr Feyki. Tvær sósur fylgja réttinum, annars vegar niðursoðið lambasoð og hins vegar rjómalöguð humarsósa.
Lambafille með blóðbergi og skessujurt, humar í deighjúp og ostakrem úr Feyki. Lambasoðsósa og rjómalöguð humarsósa fullkomna réttinn. Ljósmynd/Skjáskot Instagram
Sólber, súrmjólk og heit karamellusósa
Í eftirréttinum mætast sólber, súrmjólk, mjólkursúkkulaði, pistasíur og perur.
Uppistaðan er sólberja- og súrmjólkurmús með sólberjageli, mjólkursúkkulaðikremi og pistasíupralínbotni. Með henni er súrmjólkurís með svissneskum marengs, soðin pera og þeytt pistasíusúkkulaðikrem með perusalati.
Loks fylgir hlý vatnsdeigsbolla fyllt með vanillukremi og heit smjörkaramellusósa.
Sólber, súrmjólk, mjólkursúkkulaði og pistasíur leika saman í eftirréttinum, sem er borinn fram með perum, vanillufylltri vatnsdeigsbollu og heitri smjörkaramellusósu. Ljósmynd/Skjáskot Instagram
„Við ætlum að fara alla leið“
Að baki réttunum liggja margra mánaða æfingar og undirbúningur. Eins og fram hefur komið á mbl.is fylgja liðinu mörg tonn af búnaði, hráefni, farangri og bílum vegna þátttökunnar.
Þórir Erlingsson, framkvæmdastjóri kokkalandsliðsins, lýsti metnaðinum í samtali við mbl.is:
„Við ætlum að fara alla leið. Það er bara svoleiðis.“
Eftir keppnina á morgun tekur við keppni í Chef’s Table þriðjudaginn 24. nóvember.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/40/1694088.jpg)


