„Engar stórar fréttir í þessu frumvarpi“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir þær breytingar sem boðaðar eru í frumvarpi Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld séu fyrst og fremst til þess fallnar að einfalda líf einyrkja og fólks sem tekur að sér tilfallandi verkefni.
Kristrún ræddi við blaðamann að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.
Hún segir engar stórar fréttir vera að finna í frumvarpinu, heldur sé um einfaldanir og minniháttar lagfæringar að ræða.
Innt viðbragða við grein Guðlaugs
Var Kristrún innt viðbragða við frétt sem birtist í Morgunblaðinu í dag þar sem Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að áætlað sé að frumvarp fjármálaráðherra verði til þess að tekjur ríkissjóðs og sveitarfélaga aukist um 450 milljónir vegna hærri skattlagningar á tilfallandi aukaverkefni einstaklinga, þ.e. fólk sem tekur að sér einstaka fyrirlestra, greinaskrif eða álitsgerðir.
Kristrún sagðist ekki hafa kynnt sér fréttina en sagði frumvarpið meðal annars innihalda ákvæði sem miða að því að létta undir með einyrkjum.
„Bandormurinn er stórt og mikið frumvarp. Ég veit hins vegar að það eru ákvæði þarna inni sem eiga einmitt að einfalda líf einyrkja,“ segir hún.
Fyrst og fremst einfaldanir
„Þetta hefur til dæmis átt við fólk sem hefur verið í íþróttastarfsemi eða menningarlífi og er að taka að sér svona verkefni sem eru kannski ekki stór og mikil en mikilvæg samt, það er að segja í tekjum talið, en mikilvæg samt fyrir samfélagið að þau séu ekki að halda uppi flóknum rekstri í tengslum við það,“ segir hún.
Hún tekur þó fram að hún viti ekki hvort um sé að ræða sömu ákvæði og fjallað er um í fréttinni.
„Ég verð að segja að ég bara þekki ekki hvað Guðlaugur er að skrifa, ég verð að kynna mér þetta betur en það er ekkert óvænt í þessu frumvarpi,“ segir hún.
„Þetta eru fyrst og fremst einfaldanir sem snúa að því að einfalda líf einyrkja eins og það er að minnsta kosti lagt upp með í okkar tilviki og síðan eru þetta svona minni háttar lagfæringar í takt við hvernig starfsemi er í gangi, meðal annars hjá skattinum og fleira þess háttar.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗