Stökk út í búð og keypti ginflösku fyrir nágrannann
Bjarki Þór Jónsson hlaðvarpsstjórnandi og framhaldsskólakennari var spenntur fyrir útgáfu GTA. Ljósmynd/Aðsend
Þótt einhverjir nemendur og aðrir hefðu sagst ætla að taka sér frí frá vinnu eða skóla þegar Grand Theft Auto VI kæmi út virtust nemendur ekki standa við stóru orðin í gær og mættu í tíma hjá Bjarka Þór Jónssyni kennara við FÁ í gær.
Bjarki kennir þar nemendum á tölvur og fer meðal annars í tölvuleikjafræði.
Bjarki Þór er einnig einn fimmmenninganna á bak við hlaðvarpið Nörd norðursins, þar sem rætt er um tölvuleiki.
„Við gerðum óformlega könnun á Instagram hjá okkar hlustendum og þar sögðust 20–25% ætla að taka daginn frá. En ég er sjálfur orðinn 42 ára og í kringum mig voru menn ekkert að taka sér frí til að spila.“
1,5 milljarðar dollara
Þegar Bjarki er spurður hvort hann hafi verið spenntur fyrir útkomu leiksins stendur ekki á svarinu.
„Já, maður lifandi.“
Bjarki segir að frelsið sem spilarar hafa í leiknum höfði til þeirra og að þeim þyki leikurinn gríðarlega flottur.
„Það er talað um að leikurinn hafi kostað 1,5 milljarða bandaríkjadala að búa til. Til samanburðar eru allra dýrustu Hollywoodmyndir að kosta 500–600 milljónir dollara,“ segir Bjarki.
Golf og pyntingar
GTA er glæpasaga þar sem spilarar geta gert ýmislegt eða allt frá því að spila golf og tennis, keypt vændi, pyntað mann og lent í skotbardaga. Því þarf ekki að koma á óvart að leikurinn er bannaður innan 18 ára.
„En í gær var ég í missioni þar sem ég var bara að skokka út í búð til að kaupa ginflösku fyrir nágranna minn,“ segir Bjarki. „Þannig að þetta snýst ekki allt um ofbeldi heldur geta verkefnin verið af ýmsum toga.“
Menn flýta sér heim í kósýgallann
Bjarki kennir bæði tölvufræði og tölvuleikjafræði í FÁ og segist alltaf hafa talað fyrir ábyrgri tölvuleikjanotkun.
„Einhverjir nemendur sögðust ekki ætla að mæta í gær þegar leikurinn kom út en svo sýndist mér nú nær allir mæta í skólann sem töluðu á þeim nótum,“ segir Bjarki.
Bjarki segir að fólk klæði sig gjarnan upp fyrir stórar frumsýningar í leikhúsi og bíó. Sjálfur flýtti hann sér heim eins og fleiri spilarar og fór í kósígallann, áður en hann byrjaði að spila.
„Þetta er ekki alveg sami glamúr en menn eru bara á náttbuxunum en menn eru þess í stað að spjalla saman á netinu og deila sögum,“ segir Bjarki.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
