Sjóðheitur undir stjórn Heimis Hallgrímssonar
Framherjinn Troy Parrott hefur farið á kostum með írska landsliðinu í fótbolta að undanförnu.
Parrott skoraði tvö mörk í 3:0-sigri Íra á Kósovó í lokaleik liðsins í B-deild Þjóðadeildarinnar á þriðjudaginn, en Heimir Hallgrímsson er landsliðsþjálfari Íra.
Parrott hefur nú skorað tólf mörk í keppnisleikjum fyrir írska landsliðið á síðustu tólf mánuðum. Aðeins þrír leikmenn hafa skorað meira á sama tímabili: Erling Haaland (17), Harry Kane (13) og Kylian Mbappé (13).
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗